Ljósin tendruð á jólatrénu

Tendrun ljósa á jólatrénu okkar á Hnappstaðatúni fór fram með aðeins lágstemmdari hætti þetta árið sökum samkomutakmarkana. Tveir fulltrúar fyrsta bekkjar í Höfðaskóla þau Helgi Karl Baldursson og Snædís Stefanía Davíðsdóttir sáu um það að þessu sinni og gerðu það með glæsibrag. Við getum vonandi fagnað þessu saman að ári og tendrað ljósin á trénu með viðhöfn eins og hefð er fyrir.

 

Með kærri kveðju

sveitarstjóri