Lúpína á Spákonufellshöfða

Dagana 14. og 15. júní n.k. mun fimm manna hópur sjálfboðaliða frá Umhverfisstofnun vinna að eyðingu lúpínu á Spákonufellshöfða.

Markmið með verkefninu er að hefta útbreiðslu lúpínunnar í friðlandi Höfðans og endurheimta þau gróðursvæði sem lúpínan hefur þegar lagt undir sig. 

Heimamönnum er velkomið að koma inn í vinnuhópinn og leggja sitt að mörkum í samráði við hópinn. Verður nánara fyrirkomulag auglýst síðar.

Sveitarstjóri