Malbikun hefst á morgun mánudaginn 11. maí

Á morgun mánudaginn 11. maí hefjast framkvæmdir við malbikunar- og viðhaldsvinnu á nokkrum götum í bænum. Við biðjum íbúa vinsamlegast um gott samstarf við að færa bíla og annað frá vinnusvæðum svo framkvæmdir geti gengið hratt, örugglega og vel fyrir sig.

Áætluð framkvæmdadagskrá

Mánudagur

  • Oddagata
  • Sunnuvegur
  • Ef vel gengur verður einnig hafist handa við Túnbraut

Þriðjudagur

  • Hólabraut
  • Norðurbraut
  •  Ránabraut
    • Ekki er víst að framkvæmdum þar ljúki á þriðjudegi og gætu þær því staðið áfram yfir á miðvikudag.

Miðvikudagur

  • Ægisgrund
  • Viðgerðir á skólalóð

Við þökkum íbúum fyrir sýndan skilning og samstarf á meðan framkvæmdir standa yfir. Með því að færa ökutæki tímanlega hjálpumst við öll að við að ljúka verkinu sem fyrst og með sem minnstum óþægindum fyrir alla.

Árétta að það má ekki leggja ökutækjum eða öðru á malbikið fyrsta sólarhringinn eftir að það er lagt svo það sígi ekki. Vonumst til þess að íbúar og gestir sýni þessu skilning!

 

Sveitarstjóri