Mynd vikunnar

Ljósmynd Adolf H. Berndsen
Ljósmynd Adolf H. Berndsen

Myndin var tekin á sveitarstjórnarskrifstofunni á Skagaströnd þegar hún var enn í Fellsborg. Lárus Ægir Guðmundsson, sveitarstjóri á Skagaströnd 1972 - 1985, gluggar í pappíra og Guðrún Pálsdóttir, sem lengi vann með Lárusi á skrifstofunni, skoðar reikninga. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1980.