Þessa mynd tók Lárus Ægir Guðmundsson 1991.  Félagarnir á myndinni voru þá að koma með Haukafell SF 40  til Skagastrandar eftir að Hólanes hf keypti bátinn frá Hornafirði.  Báturinn fékk nafnið Gauti og einkennisstafina HU 59 og var gerður út á  bolfisk og rækju til 1993. Þá var hann seldur Skagstrendingi hf sem seldi  hann strax áfram til Hornafjarðar aftur.  Þar var hann tekinn af skrá í apríl 1994 en settur aftur á skrá í apríl 1996  þegar hjónin Erna Sigurbjörnsdóttir og Þorvaldur Skaftason keyptu  bátinn og komu með hann til Skagstrandar enn á ný.  Þau hjón skírðu bátinn Húni II en það var hans upphaflega nafn þegar  hann var smíðaður 1963 á Akureyri fyrir útgerðarfélagið Húni hf á  Skagaströnd.  Húni II er nú á Akureyri og þjónar þar sem útsýnis- og skólabátur.  Það má því segja að báturinn sé búinn að fara marga hringi á líftíma  sínum en líklega er hann nú að lokum  kominn í lokahöfn.   Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Stefán Jósefsson skipstjóri og  útgerðarmaður, Vilhjálmur Skaftason sjómaður, Sigurjón Guðbjartsson  skipstjóri og útgerðarmaður og Gunnar Albertsson vélstjóri.  (heimild: Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010 eftir Lárus Ægi Guðmundsson)  |