Þessi skólamynd var tekin af stúlkum úr Höfðaskóla á tröppum  "Gamla skólans" eða Bjarmaness eins og húsið heitir.  Í fremri röð eru frá vinstri:  Sigurbjörg Kristjánsdóttir frá Háagerði, Helga Ólafsdóttir í Suður-Skála,  Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti, Sigríður ?, Þórunn Bernódusdóttir í  Stórholti og Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti.  Aftari röð frá vinstri:  Sigrún Jósteinsdóttir frá Sólvangi, Halla Björg Bernódusdóttir í Stórholti,  Ástríður Bertelsdóttir í Drangey, Dagný ?, Anna Skaftadóttir í Dagsbrún,  Harpa Friðjónsdóttir í Lækjarhvammi og Aðalheiður Jónsdóttir í Hólanesi.  Tröppurnar sem stúlkurnar sitja í voru austan á húsinu með forstofu sem  sér í. Tröppurnar og forstofan hafa nú verið brotin niður og húsið sjálft  verið sett í sitt upprunalega horf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin  en líklega hefur það verið einhverntíma rétt fyrir 1958 þegar  Höfðaskóli var færður í nýtt hús.   |