Ægissíða, heimili ljósmyndarans  Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) og  foreldra hans Guðna Sveinssonar  (d. 15.11.1971) og Klemensínu Klemensdóttur  (d.12.6.1966).  Húsið er nú löngu horfið en mun að stofni  til hafa verið flutt utan úr Kálfshamarsvík.  Þar bjuggu í því Sigurður Júlíusson og  Guðbjörg Guðjónsdóttir kona hans, líklega  til 1943.  Þá keyptu Björn Jóhannesson og Ragnheiður Jónsdóttir  húsið og bjuggu í því til 1948, er þau fóru  að Bergstöðum.  Guðni Sveinsson og Klemensína Klemensdóttir  bjuggu í húsinu eftir það,  en líklega keypti Pálmi sonur þeirra húsið  af Birni.  |