Mjólkurflutningar
Gríðarlegur snjór var á Skagaströnd í janúar - maí 1995 með 
sífelldum  illviðrum. Snjómokstur gekk erfiðlega því erfitt var að 
koma snjónum fyrir nema aka honum í sjóinn. 
Ófært var út á Skaga fyrir mjólkurbílinn  og tóku bændur þá það til 
ráðs að þeir komu á dráttarvélum sínum með mjólkina í brúsum og 
tunnum til móts við mjólkurbílinn, sem komst hálfa leið út að Háagerði. 
Þar var mjólkinni dælt í mjólkurbílinn úr ílátum bændanna. 
Á þessari mynd er Sigfús Guðmundsson mjólkurbílstjóri að dæla upp úr 
brúsum frá Árna Sveinbjörnssyni frá Króksseli. 
Í baksýn eru að spjalla  Baldvin Sveinsson frá Tjörn, Vilhjálmur Skaftason 
Skagaströnd, óþekktur og Jens Jónsson frá Brandaskarði.![]()
![]()
