Mynd vikunnar

Í allmörg ár stóð Umf Fram fyrir leikjanámskeiðum fyrir yngri börn á sumrin með styrk frá sveitarfélaginu.Á þessari mynd, sem sennilega ver tekin sumarið 2004, eru krakkarnir að bíða eftir að fara í heimsókn að Brandaskarði. Á myndinni eru í fremstu röð frá vinstri: Bergrós Hafsteinsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir og Sylvía Hrólfsdóttir. Miðröð frá vinstri: Anton Einarsson og Birkir Gunnarsson. Aftasta röð frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Páll Halldórsson, Ívan Árni Róbertsson, Alma Eik Sævarsdóttir leiðbeinandi og Ragnheiður Erla Stefánsdóttir leiðbeinandi. Aftan við hópinn standa Stefán Jósefsson og Einar Ásgeirsson en þeir óku hópnum út að Brandaskarði.