Mynd vikunnar

Ljósmynd: Steinþór Karlsson
Ljósmynd: Steinþór Karlsson

Þessi loftmynd er af Spákonufellsborg eða Borgarhausnum sjálfum, tekin úr Suð-austri. Hausinn er rennisléttur að ofan vaxinn mjúkum, viðkvæmum mosa. Auðveldasta gönguleið upp á Borgarhausinn er eftir rindanum hægra megin á myndinni. Fremst á Borgarhausnum til hægri er stór grjótvarða en í henni er gestabók fyrir þá sem þar koma. Útsýn af Borgarhausnum er einstaklega gott í góðu skyggni. Hæðin sem ber yfir miðjan hausinn heitir Molduxi. Eins og sjá má eru gilin tvö í forgrunninum nánast ófær fyrir bratta enda heita þau Ófærugil og Illagil.