Námsstyrkir til nemenda

Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd skv. ákvörðun sveitarstjórnar.

Námsstyrkir til nemenda á framhalds- og háskólastigi nema 20 þús. kr. skólaárið 2019-2020 en styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.

 Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 10. apríl 2020.

 Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest verða ekki teknar til greina.

Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á heimasíðu sveitarfélagsins.

Reglur um styrkina má finna hér.

Umsókn um styrk má finna hér.  

Sveitarstjóri