Niðurstöður skoðanakönnunar hjá Skagabyggð og Sveitarfélaginu Skagaströnd

Sveitarfélögin Skagabyggð og Skagaströnd ákváðu að framkvæma skoðanakönnun til þess að kanna hug íbúa til þess að taka upp formlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaganna.

Gagnaöflun fór fram dagana 22. til og með 30. september sl. og var könnun framkvæmd sem símakönnun.

Úrtakið samanstóð af Íslendingum 18 ára og eldri búsettir í Sveitarfélaginu Skagaströnd og Skagabyggð.

Spurt var:

Viltu þú að Skagabyggð og Sveitarfélagið Skagaströnd taki upp formlegar viðræður um sameiningu sveitarfélaganna?

Niðurstaða í Skagabyggð:

  • Já: 26 þátttakendur eða 48%
  • Nei: 25 þátttakendur eða 46%
  • Veit ekki: 2 þátttakendur eða 4%
  • Vil ekki svara: 1 þátttakandi eða 2%

  • Niðurstaða á Skagaströnd:
  • Já: 194 þátttakendur 92%
  • Nei: 11 þátttakendur 5%
  • Veit ekki: 5 þátttakendur 2%
  • Vil ekki svara: 1 þátttakendur 0%

Könnunin var framkvæmd af MMR og má sjá skýrslu með niðurstöðum könnunar hér.