Nú er vorið loksins komið og ýmislegt sem kemur undan vetri víðsvegar um bæinn.
Sveitarfélagið stendur fyrir plokkdegi næstkomandi sunnudag þann 26. apríl þar sem bæjarbúar og fyrirtæki eru hvött til að fara yfir sitt nánasta umhverfi og hreinsa til fyrir sumarið!
Opið verður á gámaplani á sunnudaginn frá 10:00 - 16:00.
Boðið verður upp á grillaðar pylsur og gos í hádeginu við Bjarmanes.
Vonumst til þess að sjá sem flesta!
Sveitarstjóri