“Rekaviður – lifandi gagnabanki“ sýning í Nes listamiðstöð

Opnun sýningar og sýning heimildarmyndar: 30. október nk., kl. 15.00 – 18.00 2021. í Nes listamiðstöð á Skagaströnd, að Fjörubraut 8.

“Rekaviður – lifandi gagnabanki” er kennslufræðilegt rannsóknarverkefni sem hefur það að markmiði að vekja athygli á loftslagsbreytingum á Norðurslóðum með tilvísun til farleiða rekaviðar, mikilvægi skógræktar sem mótvægi loftslagsbreytinga en einnig sem þýðingarmikill hluti af sögu Íslands og menningu. Verkefnið “Rekaviður” er líka hvatning til allra um að taka þátt í sköpun verka úr rekaviði og til að leggja sitt af mörkum í skógrækt sem mótvægi við loftslagsbreytingar.

Verkefnið samanstendur af ferðasýningu sem er kynning á mismunandi nýtingu rekaviðar, heimildarmynd um rekavið (45 mín.) og vefsíðu verkefnisins www.rekavidur.com þar sem er ítarlegri fróðleikur.

„Rekaviður – ákall í verki“ var upphaflega hugmynd sem spratt upp í „Kollektiv Lichtung“ í Berlin en er unnin í samstarfi við Nes listamiðstöð á Skagaströnd og í samvinnu við Háskólasetur Vestfjarða. Verkefnið er styrkt af Loftslagssjóði.

Öll velkomin!