Íbúum Skagastrandar er boðið að fá salt til að setja á illgresi á stéttum. Hægt er að hafa samband við Björk (8626997) eða Helenu (8491539) til að fá salt.
Illgresiseyðing með salti þarf ekki að takmarkast við eigin lóð og það væri þakkarvert ef íbúar sjá sér fært að taka rölt um sín hverfi og setja salt á illgresi sem stingur upp höfðinu við götukanta og gangstéttir.
Fara þarf varlega með notkun salts í kringum annan gróður, sérstaklega trjáplöntur, og því skal takmarka notkun þess við hellur og stéttir. Við þetta má bæta að salt ræður því miður lítið við kerfil.