Samtal um sameiningarmál milli Skagabyggðar og Sveitarfélagsins Skagastrandar

Sveitarstjórnir Sveitarfélagsins Skagastrandar og Skagabyggðar funduðu 29. júní til þess að kanna forsendur fyrir sameiningu sveitarfélaganna.

Sveitarstjórnir áttu góðan fund. Var niðurstaða fundarins að leggja óformlega könnun fyrir íbúa seinni part sumars, til þess að kanna hug þeirra til hugsanlegrar sameiningar áður en ákvörðun verður tekin um hvort fara eigi í formlegar viðræður milli sveitarfélaganna.

Var sveitarstjóra Sveitarfélagsins Skagastrandra og oddvita Skagabyggðar falið að vinna málið áfram.