Sjávarlíftæknisetrið BioPol á Skagaströnd hlýtur 64,8 milljóna styrk frá Rannsóknasjóði Rannís

Dr. Bettina Scholz
Dr. Bettina Scholz

Sjávarlíftæknisetrið BioPol á Skagaströnd hlýtur 64,8 milljóna styrk frá Rannsóknasjóði Rannís

Dr. Bettina Scholz starfsmaður BioPol á Skagaströnd hefur, ásamt samstarfsaðilum, hlotið 64,8 milljóna rannsóknastyrk frá Rannsóknasjóði Rannís. Rannsóknaverkefnið er til þriggja ára og dreifist því styrkupphæðin á árin 2023-2025. Dr. Scholz mun leiða hóp samstarfsaðila sem munu koma að mismunandi þáttum rannsóknaverkefnisins. Innlendir samstarfsaðilar eru: Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum, Hafrannsóknastofnun og Tæknisetur. Erlendir samstarfsaðilar verkefnisins starfa við háskóla og rannsóknastofnanir m.a í Þýskalandi, Austuríki, Portúgal og Noregi.

Verkefnið ber heitið: Per og pólýflúoroalkýlefni hitta fyrir kílisþörunga kaldtempraða beltisins og tengdar samlífisverur: Uppsöfnunarleiðir og áhrif á hreysti og auðkenningu.

Per og pólýflúoroalkýlefni (PFAS) eru meðal flókinna blanda mengunarefna sem fundist hafa í yfirborðs- og grunnvatni um allan heim og jafnframt í vefjum fiska, fugla og sjávarspendýrum. Sýnt hefur verið framá að ákveðinn hópur þessara efna veldur truflun í lykilstarfsemi frumna og geta valdið neikvæðum líffræðilegum áhrifum í dýrum og mönnum. Í verkefninu verða lifandi kísilþörungar úr stofnasafni BioPol notaðir til þess að reyna að varpa ljósi á áhrif þessara efna á líf í sjó og hugsanlegar vistfræðilegar hættur sem því tengjast.

Nánari upplýsingar um úthlutun Rannsóknasjóðs Rannís má sjá hér Úthlutun úr Rannsóknasjóði styrkárið 2023 | Fréttir | Rannsóknamiðstöð Íslands (rannis.is). Sé úthlutun sjóðsins skoðuð má sjá að Sjávarlíftæknisetrið BioPol er eina fyrirtækið sem hlýtur úthlutun að þessu sinni.