Skagastrandarhöfn - Endurbygging Ásgarðs

Ljósmynd: Reynir Lýðsson
Ljósmynd: Reynir Lýðsson

Við Ásgarðsbryggju hafa legið bátar af mismunandi stærðum í gegnum árin og hefur hún þjónað mikilvægu hlutverki fyrir hafnarstarfsemi á Skagaströnd. Í dag er ástand Ásgarðs ekki eins og best verður á kosið. Nauðsynlegt er að ráðast í endurbætur á hafnarmannvirkinu til þess að það geti áfram þjónað sínum tilgangi til framtíðar og er ærið verkefni fyrir höndum.

Skoðaðir hafa verið nokkrir möguleikar á endurnýjun bryggjunnar og eru mörg ár síðan sú vinna hófst og þar með baráttan fyrir umbótum.

Það er mat Hafnarsviðs Vegagerðarinnar að endurbyggingu Ásgarðs verði best borgið með því að setja stálþil utan um núverandi bryggju og að Miðgarði, þó að fleiri útfærslur hafi verið teknar til athugunar.

Þó það sé langhlaup að knýja fram framkvæmdir, og hvað þá á þessum skala, er gaman að segja frá því að verkefnið hefur hlotið brautargengi og er á fimm ára aðgerðaráætlun samgönguáætlunar 2020-2024. Það er stór áfangi og jákvæður fyrir uppbyggingu á Skagaströnd. Gildandi samgönguáætlun felur í sér mikilvæga framtíðarsýn og víðtæk áform m.a. um nauðsynlegt viðhald á höfnum sem ber að fagna og við Skagstrendingar njótum þar góðs af.

Heildarkostnaður vegna framkvæmda er áætlaður 245 milljónir.

Stefnt er að því að frumhönnun og efniskaupum verði lokið 2021, framkvæmdir hefjist svo 2022 og ljúki 2023.

Það verður gaman að fylgjast með framgangi verkefnisins sem mun bæta ásýnd og aðstöðu á hafnarsvæði til muna.

 

Sveitarstjóri