Sveitarfélagið Skagaströnd hefur nú sett upp fjólubláán bekk á Fellsbrautinni.
Bekkina má sjá víða um landið og er liður í aukinni vitundarvakningu um heilabilun og stuðlar að opnari umræðu um málefnið í samfélaginu.
Helena Mara Velemir og Sigríður Björk Sveinsdóttir komu með hugmyndina að því að sveitarfélagið myndi kaupa bekkinn og völdu honum stað. Þær hafa undanfarin ár unnið ötullega að mörgum verkefnum til að fegra og bæta umhverfið á Skagaströnd og stendur þessi nýi bekkur sem gott dæmi um það öfluga starf.
Við vonum að bekkurinn verði notalegur áningarstaður þar sem fólk getur sest niður á göngu sinni um bæinn og á stundum hugsað til þeirra sem glíma við heilabilun og aðstandendur þeirra.
Frétt um verkefnið má sjá á heimasíðu Alzheimersamtakanna.
Sveitarstjóri