Skagaströnd tekur þátt í verkefninu Barnvæn sveitarfélög

Sveitarstjóri með kátum krökkum í Höfðaskóla
Sveitarstjóri með kátum krökkum í Höfðaskóla

Sveitarstjóri kíkti upp í Höfðaskóla á þessum fallega föstudegi til þess að skrifa undir samning við UNICEF og Mennta- og barnamálaráðuneytið í viðurvist nemenda úr Höfðaskóla.

Barnvæn sveitarfélög er verkefni sem styður sveitarfélög við að innleiða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi. Verkefnið byggir á alþjóðlegu verkefni UNICEF, Child Friendly Cities Initiative (CFCI), sem hefur verið innleitt í þúsundum sveitarfélaga út um allan heim frá árinu 1996. Verkefnið byggir jafnframt á efni frá umboðsmönnum barna í Noregi og Svíþjóð og UNICEF í Finnlandi. UNICEF á Íslandi hefur umsjón með verkefninu en verkefnið er stutt af félagsmálaráðuneytinu.

Sveitarfélög sem taka þátt og innleiða Barnasáttmálann geta hlotið viðurkenningu sem Barnvæn sveitarfélög. Innleiðingarferlið tekur að minnsta kosti tvö ár og skiptist í 8 skref sem sveitarfélag stígur með það að markmiði að virða og uppfylla réttindi barna. Að tveimur árum liðnum getur sveitarfélagið sótt um viðurkenningu frá UNICEF á Íslandi. Viðurkenningin er háð því að starfsfólk UNICEF meti sem svo að innleiðingarferlið hafi verið réttindum barna í sveitarfélaginu til framdráttar og að aðgerðaráætlun verkefnisins hafi verið fylgt eftir og komist til framkvæmdar.

Nemendur léku á alls oddi og stóðu sig vel í fyrirsætustörfunum. Það verður ánægjulegt að vinna að þessu verkefni í þágu allra barna í sveitarfélaginu.