Skagstrendingur vikunnar - Gígja Heiðrún Óskarsdóttir

Í Skagstrendingur vikunnar kynnum við til sögunnar íbúa Skagastrandar í stuttum og léttum viðtölum.

Markmiðið er að byrja vikuna á brosi, jákvæðni og betri tengingu við fólkið í samfélaginu okkar.

Skagstrendingur vikunnar er Gígja Heiðrún Óskarsdóttir.

1. Hver ert þú og hver er þín saga í stuttu máli – hvernig varð Skagaströnd hluti af lífi þínu?
Ég heiti Gígja Heiðrún Óskarsdóttir og er fædd í Engihliðarhreppi í Refasveit 1973. Foreldra mínir flytjast til Skagastrandar á bæinn Ásholt 1974. Þar ólst eg upp með fimm bræðrum mínum. Þannig varð Skagaströnd hluti af mín lífi.
2. Hvað finnst þér gera Skagaströnd að góðum og heillandi stað til að búa á?
Lítið en gott samfélag og sterkasta stoðin er gott fólk. Stundum eru ókostir við smæðina en ég tel kostina vera fleiri. Hvergi annarstaðar hefði eg viljað ala upp börnin mín. Samgöngur góðar í allar áttir og náttúran í kring er stærsti demanturinn.
3. Áttu þér uppáhaldsstað á Skagaströnd og afhverju?
Hóllinn við Ásholt er einn af mínum uppáhalds stöðum og heitir hann Álfhóll. Þar var ýmislegt leikið og brallað og enn í dag þykir mér gott að setjast upp á hólinn og "tengja" mig. Höfðinn og Sandlækur eru líka á eftirlætis listanum. 
4. Hvernig lítur fullkominn dagur á Skagaströnd út fyrir þér?
Að vakna á hverjum degi, þokkalega heil og hraust og vita að fólkið mitt er á góðum stað. Fullkomin dagur í dag er þegar börn og barnabörn koma heim, þa er veisla!
Uppáhalds tíminn minn er vorið og fátt þykir mér betra en að fara snemma á morgnana í göngu og enda svo í kaffi mrð vinkonum í morgunsólinni úti í garði.
5. Hvað í daglegu lífi hér veitir þér gleði eða ró?
Friðurinn. Þessi friður og ró sem við búum við hér í þessum litla bæ okkar á þessu litla landi. Það er ekki sjálfsagður hlutur í dag, eins og veröldin er orðin. Fyrir það er ég óendanleg þakklát og kannski gleymum við þvi stundum hvað við erum heppin og höfum það gott. 
6. Hvaða eiginleika eða áhugamál skilgreina þig best – innan eða utan vinnu?
Ég hef mjög gaman af öllu skapandi, að búa eitthvað til með höndunum, hvort sem það er að mála, teikna, steypa, móta..bara hvað sem er..!
Gera góðan mat er áhugamál og baka brauð finnst mér mjög skemmtilegt. Garðvinna blóm og tré heilla mig alltaf. Vinnulega séð held ég að ég hafi ágæta aðlögunarhæfni.
7. Er eitthvað skemmtilegt, óvænt eða sérstakt við þig sem flestir vita ekki?
Í litlum bæ þekkja allir alla og vita flest um hvorn annan, en ég held að fáir viti að ég ef grúska svolitið í heim Tarot spila og þessa dulrænu hluti, draumráðningar, innri heilun og þessháttar 😁.
8. Hvaða manneskja, atburður eða upplifun á Skagaströnd hefur haft mótandi áhrif á þig?
Pabbi hefur alltaf verið mín fyrirmynd, stoð og stytta sem hefur líklega mótað mig mest og samband foreldra minna sem var mjög gott og heilbrigt. Að eignast sín eigin börn er trúlega stærsta upplifunin. Það var mikil upplifun fyrir mig að kynnast sjómennsku á togara og hefur eflaust haft mótandi áhrif á mig sem einstakling. 
9. Hvað fær þig helst til að brosa þegar þú hugsar um bæinn okkar?
Það er þegar við komum saman á hátíðarhöldum og skemmtunum og allir gera sitt til að skemmta sér og öðrum eins og á Sjómannadaginn, Þorrablótum og bæjarhátíðum. Það eru virkilega góðar stundir sem fær alla til að brosa.
10. Hvaða skilaboð eða ósk viltu senda til íbúa Skagastrandar – núna eða til framtíðar?
Ég óska bara öllum bæjarbúum velfarnaðar og hamingju. Hamingjan er val sem kemur innan frá, ekki eitthvað sem okkur er fært, heldur sjálfunnið. Gefum frá okkur bros og hlýju, það getur haft svo mikil áhrif á einhvern sem þarfnast þess.
 
Ást og friður, er eitthvað sem heimurinn þarfnast meira af.
 

Við hjá sveitarfélaginu þökkum Skagstrendingi vikunnar kærlega fyrir að deila með okkur sinni sögu. Viðtölin minna okkur á styrkinn í samfélaginu okkar og hversu dýrmætt er að kynnast fólkinu sem gerir Skagaströnd svo einstaka!

Njótið vikunnar!