Skákmót Skagastrandar úrslit

Nýlega lauk Skákmóti Skagastrandar árið 2025 og voru keppendur átta talsins. Þetta er í annað sinn sem mótið er haldið eftir að það var endurvakið á síðasta ári en á sínum tíma var þetta árlegur viðburður. Teflt var í gamla kaupfélagshúsinu á Einbúastíg 2 og var mótið haldið í boði fyrirtækisins H 59 ehf. sem annaðist framkvæmd þess. Keppt er um skákbikar auk peningaverðlauna.

Skákmeistari Skagastrandar árið 2025 var Sigurður Björgvinsson með 6 vinninga. Í öðru og þriðja sæti voru Halldór G. Ólafsson og Jens Jakob Sigurðarson með 5 vinninga.