Spákonuhof á Skagaströnd fagnar 15 ára afmæli

Sigrún Lárusdóttir, joj, Ástrós Elísdóttir og Dagný Sigmarsdóttir ásamt Þórdísi spákonu
Sigrún Lárusdóttir, joj, Ástrós Elísdóttir og Dagný Sigmarsdóttir ásamt Þórdísi spákonu

Fyrr í vikunni fagnaði Spákonuhof 15 ára afmæli en safnið var opnað 30. júní 2011. Af því tilefni buðu tveir af stofnendum safnsins, þær Sigrún Lárusdóttir og Dagný Sigmarsdóttir, ásamt Ástrósu Elísdóttur og joj til afmælisveislu. Um 80 manns mættu til að fagna þessum merka áfanga og nutu gestir sín í góðum félagsskap.

Á þeim 15 árum sem liðin eru frá opnun hefur Spákonuhof orðið mikilvægur þáttur í menningar- og ferðaþjónustu Skagastrandar. Safnið er einstakt á landsvísu þar sem um er að ræða eina safnið sem segir sögu landnámskonu. Í safninu kynnast gestir Þórdísi spákonu og upplifa einstakt andrúmsloft þar sem saga og dulúð mætast á skemmtilegan hátt.

Við óskum Spákonuhofi til hamingju með daginn og vonum að safnið haldi áfram að vekja áhuga á sögu Þórdísar um ókomin ár.