Spjallbekkur kominn á Strandgötu á Skagaströnd

Í nýliðinni viku var settur fagurrauður "Spjallbekkur" við vinsæla gönguleið fyrir Víkina.

Spjallbekkjum er ætlað að hvetja til félagslegra samskipta og skapa tækifæri fyrir fólk til að setjast niður og eiga samtal við aðra.

Bekkurinn er merktur sérstaklega til að gefa til kynna að sá sem situr þar sé opinn fyrir samtali. Markmiðið er að skapa vinalegt rými þar sem ókunnugir geta tengst á einfaldan og óformlegan hátt. Með þessu er leitast við að ýta undir samfélagskennd og draga úr einmanaleika og félagslegri einangrun.

Öllum er velkomið að setjast á spjallbekkinn – hvort sem er til að hvílast, njóta umhverfisins eða eiga góða stund í samræðum við aðra.

Verkefnið má kynna sér frekar hér á vefsíðu "Viku einmanaleikans".