Stóri bókasafnsdagurinn

Stóri bókasafnsdagurinn er í dag, 28. september 2026 og Sandra okkar heldur auðvitað upp á daginn á bókasafninu í Fellsborg á milli kl. 15:00 og 17:00.

Sandra hefur unnið gríðarlega gott og mikilvægt starf á bókasafni okkar Skagstrendinga síðustu ár. Börn eru sérstaklega velkomin og njóta þess að dunda í krakkahorninu á safninu með heitt kakó. Þá virðist Sandra þekkja bókasmekk fullorðinna betur jafnvel betur en fólk sjálft og getur alltaf mælt með næstu bók.

Hvað er mikilvægara á tímum snjalltækja en að eiga frábært bókasafn og besta bókavörðinn?

Endilega kíkið á bókasafnið á Stóra bókasafnsdeginum eða bara þegar það er opið, sem er á mánudögum og fimmtudögum á milli kl. 15:00 og 17:00.