Styrkur vegna frístundakorts

Sveitarfélagið minnir á að foreldrar barna með lögheimili á Skagaströnd eiga rétt á styrk fyrir hvert barn á grunnskólaaldri sem tekur þátt í íþrótta- og æskulýðsstarfi.

Frestur til þess að skila gögnum vegna frístundaþátttöku síðastliðins árs er í síðasta lagi 31. janúar næsta árs. Eftir það fellur réttur þess árs niður.

Sveitarfélagið hvetur foreldra til að nýta styrkinn áður en fresturinn rennur út. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á skrifstofu sveitarfélagsins.

Sveitarstjóri