Þekktu rauðu ljósin

,,Þekktu rauðu ljósin” 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi 2022

,,Þekktu rauðu ljósin - Soroptimistar hafna ofbeldi” er slagorð íslenskra Soroptimista í 16 daga átakinu að
þessu sinni. Átakið sem leitt er af Sameinuðu þjóðunum og er alþjóðlegt hefst 25. nóvember og því lýkur
10. desember.

Um allan heim sameinast hin ýmsu samtök í því að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi með ýmsum hætti
en roðagylltur litur er einkenni átaksins, #roðagyllumheiminn, #orangetheworld en hann á að tákna
bjartari framtíð.

Markmið 16 daga átaksins að þessu sinni er að beina athyglinni að forvörnum og fræðslu og hafa
Soroptimistar útbúið fræðsluefni um hinar ýmsu myndir ofbeldis sem flokka má í sex flokka: andlegt
ofbeldi, líkamlegt ofbeldi, kynferðislegt ofbeldi, fjárhagslegt ofbeldi, stafrænt ofbeldi og eltihrellir.

Ekki er alltaf auðvelt að átta sig á því að um ofbeldi sé að ræða í samböndum fólks en það getur átt sér
stað óháð kyni, aldri og kynhneigð. Samkvæmt rannsóknum hafa 15% til 20% íslenskra kvenna og 5% til
10% íslenskra karla verið beitt ofbeldi af maka sínum eða þeim sem þau voru í ástarsambandi við og
líklega búa um 2% íslenskra kvenna við ofbeldi hverju sinni.

Íslenskir Soroptimistar, sem eru nú um 600 í 19 klúbbum, hvetja alla til að kynna sér málefnið,
fræðast og leggja sitt af mörkum til að stöðva ofbeldi. Soroptimistasystur munu þessa 16 daga vekja
athygli meðal annars með því að klæðast roðagylltum fatnaði, selja ýmsan varning, birta greinar og
fræðsluefni. Roðagyllti liturinn verður áberandi á byggingum víða um land og einnig á sendiráðum
Íslands víða um heim.

Soroptimistaklúbburinn Við Húnaflóa mun ekki láta sitt eftir liggja. Byggingar í sýslunum verða lýstar
upp í roðagylltum litum og má þar nefna Heilbrigðisstofnunina á Blönduósi, Spákonuhof á Skagaströnd,
kirkjurnar á Melstað, Blönduósi, Skagaströnd og Hvammstanga. Einnig munu appelsínugulir fánar verða
sýnilegir ásamt veggspjöldum sem munu prýða verslanir og fleiri staði. Skilaboð með slagorðum má
finna á innkaupakörfum matvöruverslana á svæðinu. ,,Þekktu rauðu ljósin - Soroptimistar hafna ofbeldi”


Þekktu rauðu ljósin strax í upphafi https://www.youtube.com/@rauuljosin6412