Þingmenn í heimsókn á Skagaströnd

Þingmenn NV-kjördæmis funduðu með sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagastrandar miðvikudaginn 30. september sl. Fundurinn fór fram í aðstöðu Atwork á Túnbraut 1-3 á Skagaströnd. Fulltrúar í sveitarstjórn áttu hreinskiptið og gott samtal við þingmennina um ýmis hagsmunamál sveitarfélagsins.