Tilkynning frá aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra

Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir Norðurland vestra næstkomandi sunnudag, 9. október og varðar hún bæði ofankomu og vind.

Ljóst er að ekkert ferðaveður verður á Norðurlandi vestra á sunnudag og fram á mánudag, og eru því allir hvattir til að gera sínar ráðstafanir í samræmi við það.

Bændur eru sérstaklega hvattir til þess að huga vel að búfénaði sínum og koma honum í skjól áður en veðrið brestur á aðfaranótt sunnudagsins.

Jafnframt má geta þess að stórstreymt er á sunnudag og vill Veðurstofan einnig vara við mögulegum sjávarflóðum.

Bestu upplýsingar hverju sinni er að finna á síðum Veðurstofunnar, www.vedur.is , og Vegagerðarinnar , www.vegag.is