Tilkynning – Vinnuskóli Skagastrandar sumar 2026

Sveitarfélagið auglýsti eftir flokksstjórum fyrir Vinnuskóla Skagastrandar fyrir sumarið 2026. Því miður hefur ekki tekist að ráða í stöðuna þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar og leit að hæfum umsækjendum.

Af þeim sökum verður ekki unnt að starfrækja Vinnuskólann í sumar eins og vonir stóðu til.

Sveitarfélagið harmar þessa niðurstöðu, enda er Vinnuskólinn mikilvægt tækifæri fyrir ungt fólk til að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði.

Auglýsingunni verður þó haldið opinni og eru áhugasamir einstaklingar hvattir til að hafa samband við sveitarfélagið ef þeir sjá sér fært að taka að sér hlutverk flokkstjóra.

Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri.