Gerður hefur verið tímabundinn ráðningarsamningur við Jóhönnu Sigurjónsdóttur til eins árs í 100% starfshlutfalli á skrifstofu sveitarfélagsins. Hún kemur formlega til starfa þann 17. ágúst næstkomandi.
Glöggir íbúar hafa þó eflaust tekið eftir því að Jóhanna hefur þegar verið með annan fótinn á skrifstofunni síðustu vikur og sinnt þar tilfallandi verkefnum. Hún hefur stigið inn með mikilvæga reynslu á krefjandi tíma og aðstoðað við að halda daglegum rekstri gangandi. Jóhanna er viðurkenndur bókari og býr, eins og flestum er kunnugt, yfir áralangri reynslu af störfum á skrifstofu sveitarfélagsins. Þekking hennar og reynsla eru því kærkomin og mikilvæg viðbót við starfsemina.
Til að fyrirbyggja misskilning er rétt að taka fram að ráðning Jóhönnu og auglýst staða
aðalbókara eru óskyld. Staðan er því enn laus til umsóknar og umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til og með 26. júlí næstkomandi.