Umhverfisviðurkenningar

Við endurtökum við leikinn frá því í fyrra og veitum umhverfisviðurkenningar 🏡🌿
 
Viðurkenningar verða veittar fyrir:
🏘️ Snyrtilegustu og best hirtu götuna
🌺 Snyrtilegasta og fallegasta garðinn
🏢 Snyrtilegasta fyrirtækið
 
🏆 Verðlaunahafar síðasta árs voru:
Ránarbraut – Snyrtilegasta og best hirta gatan
Bogabraut 13 – Snyrtilegasti og fallegasti garðurinn
Salthúsið (Salthús Guesthouse) – Snyrtilegasta fyrirtækið
 
✨ Við hvetjum alla íbúa, húsfélög og fyrirtæki til að taka höndum saman og leggja sitt af mörkum til að gera fallega bæinn okkar enn fallegri.
 
Tilkynnt verður um úrslit 1. september næstkomandi.