Úrslit í Opna Fiskmarkaðsgolfmótinu á Skagaströnd

Opna Fiskmarkaðsmótið, sem jafnframt er minningarmót um Karl Berndsen, var haldið sunnudaginn 26. júní á Háagerðisvelli.

Sigurvegari mótsins var Lárus Ægir Guðmundsson GSK, í öðru sæti var Jón Jóhannsson GÓS og í þriðja sæti Ingibergur Guðmundsson GSK.

Aðalstyrktaraðili mótsins var Fiskmarkaður Íslands, auk þess sem Harbour restaurant styrkti mótið. Við þökkum þeim fyrir stuðninginn.

Á myndinni má sjá verðlaunahafa á mótinu.

Golfklúbbur Skagastrandar