Sveitarstjórn Sveitarfélgsins Skagastrandar fór í skoðunarferð um nokkrar eignir sveitarfélagsins síðasta þriðjudag. Tilgangur ferðarinnar var að kynna sér ástand eignanna. Með þeim í ferðinni voru Vilhelm Harðarson, umsjónarmaður áhaldahúss, og Ólafur Þór Ólafsson, sveitarstjóri. Meðal þeirra eigna sem sveitarstjórnin fóru um voru íþróttahús, sundlaug, Félagsheimilið Fellsborg og áhaldahús. Ferðin var ákaflega gagnleg og mun nýtast hinum kjörnu fulltrúum vel í störfum þeirra fyrir sveitarfélagið.
Á myndin sem fylgir þessar frétt Arnar Viggósson að fara yfir stöðu mála í sundlaug með sveitarstjórninni, þegar hún kom þar við á þriðjudaginn.