Viðgerð á Strandgötu

Starfsmenn á vegum Vegagerðarinnar vinna nú að viðgerð á Strandgötunni á Skagaströnd, þar sem dæld hefur verið í veginum. Vonast er til að þessar framkvæmdir gangi hratt og vel. Vegfarendur eru beðnir um að fara varlega í kringum vinnusvæðið á meðan viðgerðin er í gangi.