Á fundi sveitarstjórnar Sveitarfélagsins Skagastrandar sem fór fram 9. september s.l. var samþykkt að bjóða upp á reglubundna viðtalstíma fyrir íbúa með fulltrúum í sveitarstjórn. Það verður Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, oddviti, sem ríður á vaðið og verður hún til viðtals þriðjudaginn 27. október n.k . milli kl. 16:00 og 17:00 á skrifstofu sveitarfélagsins að Túnbraut 1-3. Fundir með öðrum fulltrúum í sveitarstjórn munu svo fylgja á eftir á næstu vikum þar á eftir. Þeir viðtalstímar verða betur auglýstir hér á heimasíðu sveitarfélagsins.