Vinnuskóli hefst 2. júní nk.

Vinnuskóli sveitarfélagsins hefst þriðjudaginn 2. júní nk.

Þeir nemendur sem skráðir eru í Vinnuskólann eru beðnir um að mæta stundvíslega kl. 9:00 niður í áhaldahús þar sem flokkstjórar taka á móti ykkur.

Daglegur vinnutími 10. bekkjar er frá 09-12 og 13-16 mánudaga til fimmtudaga en á föstudögum til 12:00.

Daglegur vinnutími 8. og 9. bekkja er frá 09-12 og 13-16 mánudaga til fimmtudaga ekki er unnið á föstudögum.

Laun v. Vinnuskóla 2020 

8. bekkur: 705 kr á tímann m/orlofi

9. bekkur: 940 kr á tímann m/orlofi

10. bekkur: 1.175 kr á tímann m/orlofi