Vinnuskóli Skagastrandar - óskað eftir að ráða flokkstjóra

Sveitarfélagið Skagaströnd auglýsir eftir flokkstjórum til starfa í Vinnuskóla sveitarfélagsins sumarið 2022. Æskilegt er að umsækjendur séu 18 ára eða eldri eða hafi reynslu af sambærilegum störfum.

Þess ber að geta að umsóknarfrestur vegna sumarstarfa námsmanna verður auglýstur síðar.

Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri í síma 455-2700 en einnig er hægt að senda fyrirspurn á netfangið: sveitarstjori@skagastrond.is

Umsóknum skal skila á skrifstofu sveitarfélagsins eða í tölvupósti til sveitarstjóra. Umsóknareyðublöð má finna hér.

Sveitarstjóri