Vinnuskóli sumarið 2022

Vinnuskóli Skagastrandar hefst þriðjudaginn 7. júní og lýkur föstudaginn 29. júlí.

 

Vinnuskóli Skagastrandar er fyrir nemendur, búsetta á Skagaströnd, sem hafa nýlokið 8., 9. og 10. bekk Höfðaskóla.

Markmið vinnuskóla er að gefa unglingum kost á samspili vinnu, þjálfunar og fræðslu í sumarleyfi sínu.

Skráning í vinnuskólann er á skrifstofu sveitarfélagsins eða í gegnum rafræna umsókn.

Rafræn umsókn fyrir 8-9 bekk má finna hér

Rafræn umsókn fyrir 10 bekk má finna hér

 

Vinnutími

Daglegur vinnutími er frá 09-12 og 13-16 mánudaga til fimmtudaga, ekki er unnið á föstudögum.

 

Laun

Laun eru greidd út mánaðarlega

Nemendur 10. bekkjar þurfa að senda á fulltri@skagaströnd.is, stöðu persónuafsláttar ef hann skal nýttur. 

Til að finna stöðu persónuafsláttar er farið á skattur.is, eftir innskráningu má sjá neðarlega á síðunni flipann "Yfirlit til launagreiðenda". Gott er að taka skjáskot af þessari síðu og senda á fulltrui@skagastrond.is

Nemendur í 10. bekk greiða félagsgjöld og í lífeyrissjóð.

 

Iðgjöld reiknast frá næstu mánaðarmótum eftir 16 ára afmælisdag.

14 ára 30% af lfl. 117-1 / 829 m/orlofi

15 ára 40% af lfl. 117-1 / 1.105 m/orlofi

16 ára 50% af lfl. 117-1 / 1.382 m/orlofi

Laun eru lögð inn á bankareikning sem verður að vera á nafni og kennitölu viðkomandi unglings. Nemendur vinnuskóla eru tryggðir launþegatryggingu sem tryggir þá í vinnu og á beinni leið til og frá vinnu.

 

Starfsreglur

Reglur Vinnuskólans eru einfaldar og skýrar.

· Mæta skal á réttum tíma á réttum stað.

· Sýna skal flokkstjórum kurteisi sem og öllum öðrum.

· Einelti er ekki liðið.

· Reykingar eru stranglega bannaðar.

· Símar eru ekki bannaðir en ætlast er til að notkun sé í hófi.

 

Fatnaður

Nemendur Vinnuskóla skulu leggja sér til allan vinnufatnað en Vinnuskólinn leggur til öryggisvesti sem öllum er skylt að nota sem og aðrar persónuhlífar þar sem við á. Öllum er ráðlagt að merkja fatnað,skó og stígvél.

Engin ábyrgð er tekin á fötum eða öðrum hlutum sem nemendur taka með sér á vinnustað.

Brot á starfsreglum Vinnuskólans getur þýtt brottvísun að undangenginni áminningu.

 

Símar Vinnuskólans

Áhaldahús: 4522607 Villi Harðar: 8933858

Netfang Vinnuskólans er ahaldahus@skagastrond.is

 

Þeir nemendur sem skráðir eru í Vinnuskólann eru beðnir um að mæta stundvíslega kl. 9:00 niður í áhaldahús 7. júní þar sem flokkstjórar taka á móti ykkur.