Vinnuskóli sveitarfélagsins Skagastrandar sumarið 2026

Nú hefur verið ráðin til starfa flokkstjóri fyrir vinnuskóla sveitarfélagsins sumarið 2026.

Vinnuskólinn hefst því 6. júlí næstkomandi og verður starfræktur til 30. júlí

Vinnuskóli Skagastrandar er fyrir nemendur, búsetta á Skagaströnd, sem hafa nýlokið 8., 9. og 10. bekk Höfðaskóla og nú ásamt ungmennum til 18 ára.

Markmið vinnuskóla er að gefa unglingum kost á samspili vinnu, þjálfunar og fræðslu í sumarleyfi sínu. í Vinnuskóla er unglingum kennt að bera virðingu fyrir vinnu og umhverfi, notkun verkfæra og að vinna fjölbreytt störf. 

Hægt verður að sækja um til kl 13:00 þann 2. júlí

Rafræn umsókn fyrir þau sem hafa nýlokið 8-9 bekk má finna hér

Rafræn umsókn fyrir þau sem hafa nýlokið 10 bekk til 18 ára aldurs má finna hér

Vinnutími

Daglegur vinnutími er frá 09-12 og 13-16 mánudaga til fimmtudaga, ekki er unnið á föstudögum.

Laun

Laun eru greidd út mánaðarlega

Nemendur sem nýlokið hafa 10. bekk og til 18 ára þurfa að senda á vinnuskoliskagastrond@gmail.com, stöðu persónuafsláttar ef hann skal nýttur.

Til að finna stöðu persónuafsláttar er farið á skattur.is, eftir innskráningu má sjá neðarlega á síðunni flipann "Yfirlit til launagreiðenda". Gott er að taka skjáskot af þessari síðu og senda á vinnuskoliskagastrond@gmail.com

Nemendur í 10. bekk greiða félagsgjöld og í lífeyrissjóð.

Laun eru lögð inn á bankareikning sem verður að vera á nafni og kennitölu viðkomandi unglings. Nemendur vinnuskóla eru tryggðir launþegatryggingu sem tryggir þá í vinnu og á beinni leið til og frá vinnu. 

Starfsreglur

Reglur Vinnuskólans eru einfaldar og skýrar.

· Mæta skal á réttum tíma á réttum stað.

· Sýna skal flokkstjórum kurteisi sem og öllum öðrum.

· Einelti er ekki liðið.

· Notkun tókbaks/nikótíns er bönnuð. Sama gildur um áfengi, vape, nikótínpúða og önnur vímuefni.

· Símar eru ekki bannaðir en ætlast er til að notkun sé í hófi.

Fatnaður

Nemendur Vinnuskóla skulu leggja sér til allan vinnufatnað en Vinnuskólinn leggur til öryggisvesti sem öllum er skylt að nota sem og aðrar persónuhlífar þar sem við á. Öllum er ráðlagt að merkja fatnað, skó og stígvél.

Engin ábyrgð er tekin á fötum eða öðrum hlutum sem nemendur taka með sér á vinnustað.

Brot á starfsreglum Vinnuskólans getur þýtt brottvísun að undangenginni áminningu.

 

Símar Vinnuskólans

Áhaldahús: 4522607 - Villi Harðar: 8933858 - Elín ómars: 779-0468

Netfang Vinnuskólans er ahaldahus@skagastrond.is

Þeir nemendur sem skráðir eru í Vinnuskólann eru beðnir um að mæta stundvíslega kl. 9:00 niður í áhaldahús þann 6.júlí þar sem flokkstjóri tekur vel á móti nemendum.