Vörðum leiðina saman - Opinn samráðsfundur Innviðaráðuneytis

Íbúum í öllum landshlutum er boðið til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman.

Skráning og dagskrá funda: http://www.stjornarrad.is/vordumleidinasaman

Á fundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkum innviðaráðuneytisins. Meginviðfangsefni verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður ný byggðaáætlun kynnt.

Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum, sem flestir verða milli kl. 15-17 á auglýstum fundardögum. Fundirnir verða haldnir í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams.