23.02.2009
Þegar vel viðrar á Skagaströnd, sem er sko eiginlega alltaf, kemur fyrir að fjöllin hinum handan Flóans sýni sig. Það þarf nú ekki endilega að gerast á sama tíma því veður í Strandasýslu eru oft önnur en hérna megin.
Hvað heita fjöllin vestan Húnaflóa á sömu breiddargráðu og Skagaströnd? Þessi spurning kom eitt sinn fyrir í spurningakeppninni Drekktu betur. Svarið er Balafjöll. Þau rísa bratt og tignarlegir hamrarnir blasa við augum eins og glögglega má sá á meðfylgjandi mynd.
Og þegar veðrið er gott væri gaman að geta ort eins og Helga frá Flögu:
Björt sem vandað brúðarlín,
breidd á þandan snjáinn.
Fallegu Strandafjöllin mín
fyrir handan sjáinn.
23.02.2009
Ertu með hugmynd ?
Viðtalstímar menningarfulltrúa
Vegna auglýsingar um verkefnastyrki Menningarráðs Norðurlands vestra verður Ingibergur Guðmundsson, menningarfulltrúi, með viðtalstíma í A-Hún. sem hér segir:
Fimmtudagur 26. febrúar:
Kl. 11.00 - 12.00 - Bókasafn Húnavallaskóla
Kl. 13.00 - 16.00 - Skrifstofa Blönduósbæjar
Kl. 16.15 - 17.00 - Skrifstofa menningarráðs, Skagaströnd
Pantaðu tíma í síma 892 3080 eða bara mættu á staðinn.
Menningarráð Norðurlands vestra
23.02.2009
Verkefnastyrkir til menningarstarfs
Menningarráð Norðurlands vestra auglýsir eftir umsóknum um verkefnastyrki á grundvelli samnings menntamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við SSNV frá 1. maí 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarf og menningartengda ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra.
Menningarráð Norðurlands vestra hefur ákveðið að hafa tvær úthlutanir á árinu 2009, með umsóknarfrestum til og með 12. mars og 15. september.
Menningarráð skilgreinir verkefni í eftirtalda flokka:
a) Stærra samstarfsverkefni. Stærra samstarfsverkefni þarf að fela í sér samstarf aðila úr þeim þremur sýslum sem eru á starfssvæði ráðsins. Heimilt er að veita allt að 3 milljónum króna til slíks verkefnis en styrkur getur þó aldrei verið hærri en 70% af heildarkostnaði verkefnisins.
b) Minni samstarfsverkefni, svæðisbundin verkefni og verkefni einyrkja. Heimilt er að veita allt að 1,5 milljónum króna til hvers verkefnis en styrkur getur þó aldrei verið hærri en 50% af heildarkostnaði verkefnisins.
Menningarráð hefur ákveðið að þau verkefni hafi forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
· Efling atvinnustarfsemi, þekkingar og fræðslu á sviði menningar og lista.
· Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
· Nýsköpun og þróun menningarstarfs og menningartengdrar ferðaþjónustu.
· Aukin þátttaka ungs fólks og eldri borgara í menningarstarfi.
· Verkefni sem hafa unnið sér sess og viðurkenningu og eru vaxandi
Umsækjendur geta verið einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Norðurlandi vestra. Skilyrði er að viðkomandi sýni fram á mótframlag.
Umsækjendum er bent á að kynna sér nánar úthlutunarreglur 2009, menningarsamninginn og stefnumótun í menningarmálum á www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð.
Umsóknir skulu vera á eyðublöðum Menningarráðs Norðurlands vestra sem hægt er að nálgast á heimasíðunni www.ssnv.is undir liðnum Menningarráð. Í umsókninni skal m.a. vera greinargóð lýsing á verkefninu með verkáætlun og tímasetningum, ítarleg fjárhagsáætlun (kostnaðar- og tekjuáætlun) og upplýsingar um aðstandendur.
Umsóknir vegna fyrri úthlutunar ársins 2009 skulu sendar Menningarfulltrúa Norðurlands vestra, Einbúastíg 2, 545 Skagaströnd, eigi síðar en 12. mars 2009. Þær má senda rafrænt á netfangið menning@ssnv.is. Séu þær sendar í pósti skulu þær póststimplaðar eigi síðar en síðasta umsóknardag.
Allar nánari upplýsingar og aðstoð veitir Ingibergur Guðmundsson menningarfulltrúi Norðurlands vestra, símar 452 2901 / 892 3080, netfang menning@ssnv.is
19.02.2009
Listamennirnir í Nes-listamiðstöðinni á Skagaströnd vilja sem fyrr ná til Húnvetninga og bjóða því upp á opið hús laugardaginn 21. febrúar kl. 13:00 að Fjörubraut 8.
Á því tæpa ári sem liðið er frá því að Nes-Listamiðstöðin tók til starfa hafa listamennirnir nokkrum sinnum boðið upp á opið hús. Alltaf hefur fjöldi fólks komið í heimsókn og notið þess að fræðast um hin ólíku listform sem unnið er að.
Á vegum listamiðstöðvarinnar eru sjö listamenn í febrúar. Þeir eru Natalia Black frá Slóvakíu, Lucas Gervilla frá Brasilíu, Michele Horrigan frá Írlandi, Ben Kingsley og Jessica Langley frá Bandaríkjunum, Sean Linch og Lucy Mckenna frá Írlandi.
19.02.2009
Auglýst hefur verið eftir umsóknum um stuðning frá Vaxtarsamningi Norðurlands vestra. Til greina koma verkefni sem unnin eru í samvinnu tveggja eða fleiri aðila og er sérstaklega hvatt til uppbyggingar samstarfs í anda klasa.
Verkefnin lúta að öðru hvoru:
Rannsóknum og menntun
Menningu og ferðaþjónustu
Umsóknir sendist fyrir 15. mars nk. til Vaxtarsamnings Norðurlands vestra, Faxatorgi 1, 550 Sauðárkróki.
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar er að finna á vef SSNV, www.ssnv.is og hjá starfsmanni sjóðsins, Hjördísi Gísladóttur, Faxatorgi 1 á Sauðárkróki. Síminn hjá henni er 455 7931 og 893 8277.
17.02.2009
Á degi leikskólanna þann 6. febrúar síðast liðinn var opnuð listsýning Leikskólans Barnabóls í Landsbankanum á Skagaströnd. Við það tækifæri sungu börnin fyrir gesti og gangandi.
Sýningin í ár fjallar um kúrekana á sléttunni og má sjá hesta og kúreka í hinum ýmsu gerðum og marga með frábæran útbúnað.
Undanfarin ár hafa slíkar sýningar verið haldnar í bankanum og þær fjallað um ýmislegt úr nánasta umhverfi eins og t.d. fjallið okkar, Spákonufell, hrafninn, styttur bæjarins og fleira. Allt starfsmönnum og getsum til mikillar ánægju.
Landsbankinn býður alla hjartanlega velkomna í Landsbankann að skoða sýninguna.
17.02.2009
Síðasta laugardag viðraði vel til skíðaferða og Skagstrendingar gripu tækifærið og fjölmenntu á skíðasvæðið í Tindastóli.
Hér eru nokkrar myndir sem Ingibergur Guðmundsson tók af unga fólkinu sem ber sig svo fagmannlega.
Þess má að auki geta að daglegar rútuferðir eru alla laugardaga frá Skagaströnd á Tindastól.
Skíðasvæðið er opið um helgar frá 11 til 17 en 14 til 19 virka daga.
17.02.2009
Árdís Indriðadóttir og Davíð Bragi Björgvinsson sigruðu í spurningakeppninni Drekktu betur sem haldin var síðasta föstudag.
Þetta er í annað sinn sem þau sigra og mætti eflaust álykta sem svo að uppeldið hjá Árdísi hafi gagnast Davíð vel, en hann er sem kunnugt er sonur hennar.
Fjölmenni var sem fyrr í Kántrýbæ. Stjórnandi var Elva Dröfn Árnadóttir, kennari.
Meðfylgjandi myndir tók Ingibergur Guðmundsson.
05.02.2009
Einn listamanna í Nes-listamiðstöð, Ben Kinsley, hefur tekið sérstaka Panorama mynd af Skagaströnd á góðum vetrardegi. Myndin er tekin með sérstakri tækni þannig að hún er samansett úr 300 myndum þannig að mögulegt er að fá mjög skýra nærmynd af flestu sem fram kemur á myndinni.
Myndina má nálgast hér.
05.02.2009
Sveitarstjórn Skagastrandar hefur ákveðið að veita styrki til nemenda á framhalds- og háskólastigi sem nemur 25 þús kr. skólaárið 2008-2009. Styrkirnir eru veittir til jöfnunar á námskostnaði fjarri heimabyggð.
Umsóknum um styrki skal skilað til skrifstofu sveitarfélagsins fyrir 27. febrúar 2009.
Nemendur á framhalds- og háskólastigi sem eiga lögheimili á Skagaströnd og fullnægja skilyrðum í reglum um styrkina eiga rétt á umræddum námsstyrk frá Sveitarfélaginu Skagaströnd.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu sveitarfélagsins og á www.skagastrond.is
Umsókn
Reglur
Skagaströnd, 4. febrúar 2009.
Fyrir hönd sveitarstjórnar
Sveitarstjóri