30.05.2005
Undanfarin tvö hefur verið í gangi samvinnuverkefni milli Höfðaskóla og Hov skóla í Hönefoss í Noregi þar sem sambandi var komið á milli elsta bekkjar Hov skólans og tveggja elstu bekkja Höfðaskóla með gagnkvæma heimsókn að markmiði. Hafa nemendur unnið ýmis verkefni um staði og lönd hvors annars og verið dugleg að safna peningum til að geta heimsótt hvort annað.
Norðmennirnir riðu á vaðið og dvöldu hér á Skagaströnd 24.-26. maí. Allir gestirnir voru klæddir í bláar peysur sem er nokkurs konar einkennismerki verkefnisins og allir sem tóku á móti þeim hér voru í sams konar peysum. Hingað komu 25 norskir nemendur ásamt 8 fylgdarmönnum, þar á meðal myndatökukonu sem tók upp alla heimsóknina.
Norðmennirnir komu að kvöldi 24. maí og eftir að hafa borðað í Kántrýbæ fór hópurinn í íþróttahúsið og tók þátt í örnámskeiði í kántrýdönsum. Að því loknu fór hver heim með sínum gestgjafa því allir gistu heima hjá nemendum úr 9. og 10. bekk.
Á miðvikudagsmorgni var haldið af stað í hringferð fyrir Skagann. Stoppað var á nokkrum stöðum á leiðinni, m.a. í Kálfshamarsvík, á Hrauni var æðarvarp skoðað og við Ketubjörg fengu allir sem vildu að smakka hákarl. Að þessu loknu var snætt nesti í Skagaseli. Þegar komið var heim til Skagastrandar var hópnum skipt í þrennt. Allir fengu að fara í golf, á hestbak og í siglingu út að ísjakanum. Þetta þótti hin mesta upplifun fyrir alla. Um kvöldið var síðan grillveisla í Fellsborg í umsjón foreldra og svo diskótek á eftir.
Á fimmtudagsmorgni var byrjað á að fara í skólann, skólinn var skoðaður og unnið eitt vinaverkefni. Síðan var haldið í jeppaferð upp að Langavatni. Hátt í 15 jeppar fluttu alla upp að vatni. Þar voru bátar fyrir þá sem vildu veiða en frekar kalt var uppfrá, þannig að veiðimenn héldu ekki lengi út. Grillað var í hádeginu, bæði pylsur og fiskurinn sem veiddist. Allir voru sælir og ánægðir með þessa skemmtilegu ferð.
Eftir heimkomuna fóru allir heim með sínum gestgjöfum og tóku til farangurinn sinn og eftir það var haldið á ný í Fellsborg þar sem kveðjukaffi var drukkið. Síðan hélt norski hópurinn af stað suður en ferðin þeirra er alls ekki búin. Þau ætla að skoða sig um fyrir sunnan og halda síðan af stað til Noregs á mánudaginn.
Þessum samskiptum er síður en svo lokið því nemendur í 9. og 10. bekk Höfðaskóla halda svo af stað til Noregs þann 7. júní og ætla þau að heimsækja norsku krakkana, ásamt því að skoða sig um í Osló og nágrenni.
Höfðaskóli, nemendur og foreldrar í 9. og 10 bekk vilja þakka öllum þeim fjölmörgu sem komu að þessari heimsókn og hjálpuðu við að gera ferðina fyrir Norðmennina sem eftirminnilegasta.
27.05.2005
Vinnu við malbikun götu á milli hafnarvogar og Fiskmarkaðar lauk í gær. Malbikinu var keyrt frá Akureyri og kom vinnuflokkur þaðan sem vann við útlagningu malbiksins. Í þessum áfanga voru lagt um 100 tonn en stefnt er að frekari malbikun síðar í sumar þegar malbikunarstöðin verður staðsett á Sauðárkróki. Fiskmarkaðurinn er að flytja í nýja aðstöðu og er verið að leggja lokahönd á frágang við skrifstofu- og þjónustuálmu Fiskmarkaðsins og verður þá öll starfssemi hans í sama húsi.
19.05.2005
Prófum sem fjarnámsnemendur fá leyfi til að taka í Námsstofunni er lokið nú í maí. Þetta voru 27 próf sem 14 fjarnámsnemendur tóku við 4 skóla. Síðan eru nokkrir fjarnámsnemendur sem taka próf í sínum skóla. En alls eru 25 einstaklingar með samning um að nýta aðstöðuna í Námsstofunni.
Í Námsstofunni er góð aðstaða til að stunda fjarnám, nokkrar tölvur og lestofa. Frá áramótum hafa 29 einstaklingar nýtt sér þá aðstöðu. Fjarfundabúnaðinn hafa 8 einstaklingar notað til að sitja kennslustundir í Námsstofunni.
Þessa dagana og næstu vikur er Þóra Ágústsdóttir í Námsstofunni að vinna að lokaverkefni sínu við háskólann í Álaborg í Danmörku.. Verkefnið er á sviði Evrópufræði og fjallar um hvers vegna Ísland hefur ekki sótt um aðild að ESB.
Nú fer að hefjast innritun hjá þeim skólum sem eru með fjarnám. Því ættu þeir sem hafa verið að hugsa um að fara í fjarnám að taka sig til og kynna sér hvað þeim stendur til boða.
Hér eru nokkrir skólar sem bjóða upp á fjarnám:
Kennaraháskóli Íslands
Háskólinn á Akureyri
Verkmenntaskólinn á Akureyri
Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra
Fjölbrautarskólinn við Ármúla
Háskóli Íslands
Háskólinn á Hólum
Háskólinn í Reykjavík
Tækniháskóli Íslands
Viðskiptaháskólinn á Bifröst
Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri
Menntafélag byggingariðnaðarins
Rafiðnaðarskólinn
Fræðslumiðstöð málmiðnaðarins
Hótel- og matvælaskólinn
Borgarholtsskólinn
Iðnskólinn í Reykjavík
Þessi listi er ekki tæmandi og skólarnir bjóða ekki upp á alla sína námsskrá í fjarnámi. Auk skólanna bjóða ýmsir aðilar alls konar áhugaverð námskeið í fjarnámi.
Þeir sem vilja aðstoð eða nýta aðstöðuna í Námsstofunni á Skagaströnd er bent á að hafa samband við undirritaðan.
Maí 2005
Umsjónarmaður Námsstofunnar á Skagaströnd
Hjálmur Sigurðsson
S: 8440985
17.05.2005
Hefðbundin dagskrá sjómannadags færist fram um einn dag og verður laugardaginn 4. júní. Í tengslum við dagskrána verður nýju björgunarskipi gefið nafn og það vígt formlega. Björgunartækjasýning verðu einnig sett upp á hafnarsvæðinu í tilefni dagsins. Á sunnudeginum er fyrirhugað að hafa hoppukastala á skólalóð fyrir yngstu kynslóðina og þá verðu einnig bíósýning í Fellsborg.
Drög að dagskrá sjómannadags:
Laugardagurinn 4.júní 2005.
10: 30 Skrúðganga frá höfn að kirkju.
11:00 Sjómannadagsmessa í Hólaneskirkju.
13:15 Skemmtisigling
14:00 Skemmtun á hafnarsvæðí
Kappróður
Vígsla á nýju björgunarskipi
Björgunartækjasýning
Leikir á Hafnarhúsplani
15:30 Kaffisala í Höfðaskóla
23:00 Dansleikur í Fellsborg
Sunnudagurinn 5. júní 2005.
14:00 Hoppukastali fyrir börn á skólavelli
18:00 Barna- og fjölskyldumynd sýnd í Fellsborg
Björgunarsveitin Strönd
09.05.2005
Jósef Ægir Stefánsson einn af hraustustu sonum Skagastrandar gerði garðin frægan út í Frakklandi um helgina en þar sigraði hann í glímu sem kölluð er gouren. Þessi tegund glímu er satt að segja ekki algeng á Skagaströnd en Jósef hefur ekki verið þekktu fyrir að setja smámuni fyrir sig og lærði glímuna eftir óhefðbundnum leiðum. Að vonum eru Skagstrendingar mjög stoltir yfir afreki Jósefs.
Eftirfarandi frétt er tekin af vef Glímusambands Íslands, www.glima.is
Evrópumóti fangbragða lauk nú fyrir skömmu en mótið fór fram í Landerneau í Frakklandi um helgina. Spánverjar urðu Evrópumeistarar í þriðja sinn en þeir unnu einnig árin 1999 og 2001. Ísland hafnaði í fimmta sætinu sem verður að teljast mjög góður árangur miðað við að Ísland hefur ekki tekið þátt síðan 1991 og auk þess að vera aðeins með sex menn. Fyrir utan þetta þá meiddist Jón Örn og hafði það mikil áhrif á heildarstigakeppnina. Það sem stóð upp úr hjá Íslenska liðinu var þegar Jósef Ægir Stefánsson varð Evrópumeistari í gouren –100 kg flokki. Hann var síðan mjög óheppinn í back hold keppninni því hann tapaði tvisvar 3-2. Pétur Eyþósson vann brons í gouren –81 kg flokki og Eiríkur Óskar Jónsson náði einnig í brons í back hold en hann keppti í +100 kg flokki...
Jósef Ægir varð í dag Evrópumeistari í gouren7. maí 2005
Evrópumót fangbragða hófst í dag með keppni í gouren. Helstu úrslit af mótinu eru þau að Jósef Ægir Stefánsson sigraði glæsilega í -100 kg flokki og er þar með Evrópumeistari í gouren. Önnur úrslit af mótinu eru þau að Pétur Eyþórsson hafnaði í þriðja sæti í -81 kg flokki og þeir Ólafur Oddur Sigurðsson og Snær Seljan Þóroddsson lentu í fjórða sæti í sínum flokkum. Ólafur í -90 kg flokki en Snær í -74 kg flokki. Eiríkur Óskar Jónsson og Jón Örn Ingileifsson urðu síðan báðir að hætta keppni vegna meiðsla og er óvíst hvort þeir keppi á morgun í back-hold. Glímusambandið óskar strákunum innilega til hamingju með frábæran árangur í gouren.
29.04.2005
Haldinn verður kynningarfundur á fjarnámi við Háskólann á Akureyri veturinn 2005-2006 í Námsstofunni á Skagaströnd mánudaginn 2. maí kl. 17:30 – 19:00. Kynningin er send út frá Háskólanum á Akureyri í fjarfundi á ellefu staði á Norður- og Vesturlandi. Fjórar deildir skólans af sex bjóða nú upp á fjarnám. Þetta eru auðlindadeild, heilbrigðisdeild, kennaradeild og viðskiptadeild.
Allir áhugasamir eru velkomnir.
Námsstofan á Skagaströnd
Hjálmur Sigurðsson
28.04.2005
Tölvunámskeið fyrir 55 ára og eldri var haldið í tölvuveri skólans á Skagaströnd. Alls sóttu 11 námskeiðið sem var samtals 24 kennslustundir. Flestir þeirra sem námskeiðið sóttu höfðu lítið eða ekkert unnið á tölvu og miðaðist þessi fyrsta nálgun við að fólk næði tökum á að vinna með tölvumús, lærði að nota lyklaborð og fengi grunnþjálfun í notkun algengustu forrita ss. ritvinnslu og að fara á internetið. Námskeiðið þótti takast mjög vel og nemendur mjög áhugasamir. Leiðbeinandi á námskeiðinu var Dagný Rósa Úlfarsdóttir.
28.04.2005
Halló halló ! Skagstrendingar ungir sem aldnir !
Nú endurvekjum við gömlu góðu stemminguna með stórdansleik laugardaginn 7 maí kl. 22:00 í Skaftfellingabúð Laugavegi 178
hljómsveit Hilmars Sverrissonar sér um fjörið. Óvæntar uppákomur að hætti Skagstrendinga mætum öll með góða skapið.
Nefndin. Valdi Hún & Reynir Sig. 894-1388 & 820-6006
25.04.2005
FUNDARBOÐ
Fundur verður haldinn í Hreppsnefnd Höfðahrepps þriðjudaginn 26. apríl 2005 á skrifstofu hreppsins kl 800.
Dagskrá:
1. Grunnskólinn – umsóknir um stöðu skólastjóra.
2. Leikskólinn – drög að samningi við Skagabyggð um rekstur leikskólans.
3. Sameining sveitarfélaga.
4. Byggðakvóti.
5. Bréf:
a) Siglingastofnunar, dags. 15.03.2005
b) Sambands íslenskra sveitarfélaga, dags. 15.03.2005.
c) Formanns jafnréttis og fjölskyldunefndar Akureyrarbæjar, 1.04.2005.
d) Samvinnunefndar um svæðisskipulag í A-Hún, dags. 12.04.2005.
e) Sóknarnefndar Hólaneskirkju dags. 19.04.2005
6. Fundargerðir:
a) Skólanefndar, 23.03.2005
b) Húsnæðisnefndar, 29.03.2005.
c) Hafnarnefndar 20.04.2005.
d) Stofnfundar um Hollvinasamtök HSB, dags. 15.03.2005.
7. Önnur mál.
Sveitarstjóri
21.04.2005
Landvinnsla FISK á Skagaströnd var með opin dag og bauð í heimsókn í vinnsluna, sumardaginn fyrsta. Þar var boðið upp á ýmislegt skemmtilegt. Starfsfólk vinnslunnar stóð að skemmtilegri kynningu á afurðum og vinnsluaðferðum og sýndi hvernig fiskurinn er meðhöndlaður í vinnslunni. Andrúmsloftið var svo gert léttara með lifandi tónlist og einnig boðið upp á sælkerarétti úr saltfiski svo og fiskisúpu. Í hluta vinnslusalarins var uppi myndlistasýning leikskólabarna sem þau unnu eftir heimsókn í vinnsluna fyrr í vikunni. Aðalviðfangsefni þeirra í myndgerðinni var fiskur, einkum saltfiskur og óhætt að segja að túlkun þeirra á viðfangsefninu hafi verið lífleg og skemmtileg. Fjöldi fólks lagði leið sína í landvinnsluna í blíðunni á sumardaginn fyrsta og greinilegt að fólk kunni vel að meta framtak FISK og það sem í boði var.