10.09.2004
Ævintýrið Skrapatungurétt
Stóðsmölun og réttir í A-Húnavatnssýslu
Dagana 18. og 19. september verður mikið fjör í Austur
Húnavatnssýslu, stóðsmölun á Laxárdal og réttir í
Skrapatungurétt. Gestir eiga þess kost að slást í för
með gangnamönnum á eyðidalnum Laxárdal og upplifa
alvöru þjóðlegt ævintýri. Þátttakendur geta leigt hesta
hjá heimamönnum eða mætt með sína eigin hesta.
Stóðhrossin verða rekin til byggða á laugardeginum 18.
september. Lagt er af stað frá Strjúgsstöðum í
Langadal kl. 10. og síðan riðið sem leið liggur um
Strjúgsskarð og norður Laxárdal. Þeir reiðmenn sem
koma með hesta sína á föstudegi í Strjúgsstaði eru
beðnir að hafa samband við landeigenda í síma 846
0411. Við Kirkjuskarðsrétt á Laxárdal, hvíla hestar og
menn og fá sér að eta og drekka eftir þörfum. Veitingar
verða seldar á staðnum. Ráðgert er að leggja af stað
kl. 16 frá Kirkjuskarði. Þaðan er riðið norður í
Skrapatungrétt sem er ein myndarlegasta stóðrétt
landsins. Þátttakendur eru beðnir að virða það, að ekki
er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni.
Gestir og heimamenn heillast ávallt af tignarlegu
stóðinu sem telur hundruð. Í ár hefur verið búið til nýtt
embætti í kringum þennan viðburð,
ferðamannafjallkóngur. Fyrstur til að bera þann titil er
Valgarður Hilmarsson forseti bæjarstjórnar Blönduóss.
Ferðamannafjallkóngurinn, sem er heimavanur á
þessum slóðum, mun sjá um fararstjórn og leiðsögn
ferðamanna í stóðsmöluninni.
Fyrir þá sem heldur vilja koma á bíl til að fylgjast með
gangnamönnum og réttarstörfum, er rétt að benda á að
Skrapatungurétt er í um 15 mín. akstursfjarlægð frá
Blönduósi en fram að Kirkjuskarðsrétt er aksturstími
um 40 mín.
Á laugardagskvöldinu kl 20 verður haldið til grillveislu í
reiðhöllinni við Blönduós. Þeir sem vilja snæða í
grillveislunni er beðnir að panta fyrir hádegi föstudaginn
17.september í síma 452 7171 eða 896 6011.
Partýstemningin nær svo hámarki á dansleik síðar um
kvöldið í Félagsheimili Blönduóss. Á
Réttardansleiknum leikur hljómsveitin Sixties fyrir
dansi.
Á sunnudagsmorgun hefjast réttarhöld í
Skrapatungurétt um kl. 10. Bændur ganga í sundur
hross sín og reka þau svo í lok dags til síns heima. Oft
finna menn og konur sinn draumagæðing í
smalamennskunni eða í réttunum. Mikið úrval
söluhrossa verður á boðstólnum í Skrapatungurétt og
hægt að gera góð kaup.
Stóðréttarhelgi Skrapatunguréttar er hátíð heimamanna
og ferðafólks þar sem er spilað sungið og skemmt sér
að sið Íslendinga.
Allir eru gestir eru hjartanlega velkomnir. Nánari
upplýsingar og bókanir í stóðsmölun, í síma 891 7863
eða í netfangi haukur@anv.is
04.09.2004
Togarinn Örvar HU 2 sem fara átti í slipp í Póllandi á
næstu dögum fer ekki fyrr en í byrjun janúar á næsta
ári. Ástæður þessarar seinkunar er að
skipasmíðastöðin sem átti að taka hann upp hefur
mikið af verkefnum og seinkaði því slipptökunni.
Togarinn kom inn til löndunar fyrir mánaðarmótin og
landaði rúmum 250 tonnum af unnum afurðum. Afli
skipsins í síðustu veiðiferð mun því hafa verið nærri 350
tonn upp úr sjó, aðallega grálúða. Aflaverðmæti var um
65 milljónir króna eftir 38 úthaldsdaga. Örvar mun halda
til veiða í næstu viku á þriðjudag - miðvikudag.
03.09.2004
Slysavarnaskóli sjómanna kom til Skagastrandar
dagana 2.-3. september sl. með skólaskipið Sæbjörgu
vegna endurmenntunarnámskeiðs sjómanna.
Námskeiðið sóttu um 30 sjómenn. Námskeiðið var
hnitmiðað og vel að því staðið frá hend
Sæbjargarmanna, þar var farið yfir helstu atriði sem
geta komið fyrir út á rúmsjó. Má þar m.a. nefna:
eldvarnir, meðferð slökkvubúnaðar, björgun manna á
sjó með ýmsum búnaði og meðferð
gúmmibjörgunarbáta. Björgunarsveitin Strönd á
Skagaströnd og Björgunarsveitin Blanda á Blönduósi
komu fyrir fluglínutækjum frá fjöru út í grjótgarð þar sem
björgunarsveitirnar sýndu meðferð þeirra og menn
dregnir á milli í björgunarstól. Þegar upp var staðið voru
menn virkilega ánægðir með komu Sæbjargar og telja
þetta nauðsynlegan þátt í fræðslu sjómanna. Í lokin
fengu þátttakendur skirteini um þátttökuna (maritime
safety and survival training centre).
Unglingadeild björgunarsveitarinnar Strandar fékk
kynningu í meðferð slöngubáta, bæði bóklega og
verklega kennslu. Unglingarnir fengu að nota
slöngubátana á rúmsjó og tóku þátt í æfingum í björgun
fólks úr sjó. Og fengu kynningu á notkun
neyðarbúnaðar skipa bæði gúmmíbjörgunarbáta og
búnaði sem í þeim er. Unglingadeildin tók virkan þátt í
undirbúningi námskeiðsins og hjálpuð til við að koma
fluglínubúnaði fyrir. Alls tóku 12 unglingar þátt í
æfingunni.
23.08.2004
Opna KB banka golfmótið á Skagaströnd var haldið í
frábæru veðri í laugardaginn 21. ágúst. Mót þetta sem
jafnframt er minningarmót um Karl Berndsen tókst í alla
staði vel. Keppendur voru 34 frá 10 golfklúbbum.
Sigurvegari í kvennaflokki án forgjafar varð Árný L.
Árnadóttir GSS á 86 höggum. Hún sigraði einnig með
forgjöf og lék á 77 höggum. Í karlaflokki án forgjafar
sigraði Jóhann Ö. Bjarkason GSS eftir bráðabana við
Pál Valgeirsson GOS, léku þeir á 83 höggum. Með
forgjöf sigraði Guðjón H. Sigurbjörnsson GSK á 66
höggum.
20.08.2004
Vinnuskólinn hófst í sumar þann 8. júní og lauk þann
17. ágúst. Í sumar var mikil gróska og mikið fjör og
tóku nýir flokkstjórar við krökkunum og báru þær báðar
sama nafnið “Heiða” eða Heiðurnar eins og krakkarnir
kölluðu þær. Í vinnuskólanum voru á bilinu 25- 30
unglingar sem sinntu bæði stórum og smáum verkum.
Áhersla var lögð á að bærinn okkar væri sem
fallegastur, en minna var um slátt þetta sumar vegna
lítilla rigninar og vöxtur í grasi var því ekki mikill.
Vinnuskólinn sá einng um að tína rusl, sópa götur
bæarins og plokka íllgresi úr sprungum í gangstéttum.
Sérstakir arfa og íllgresis leiðangrar voru farnir um allan
bæinn þar sem njólinn var lagður í einelti og höggvinn
hvar sem til hans sást. Vinnskólinn sá að mestu um að
tjaldstæðið í bænum liti vel út í sumar.
Vinnskólastarfinu lauk með ferð sem var hreint ótrúleg,
því farið var í RAFTING þar sem róið og flotið var niður
vestari Jökulsá í Skagafirði. Eins og gefur að skilja með
kraftmikinn unglingahóp var mikið fjör í þeirri ferð.
Auðvitað lentu margir í ánni. Allir komu þó heilir heim
en misjafnlega blautir. Eftir slark í Jökulsá var haldið á
Ólafshús á Sauðárkróki í dýrindis pizzu hlaðborð að
hætti Óla og svo að lokum var haldið heim á Ströndina
Að lokum viljum við Heiðurnar þakka öllum þeim sem
voru í vinnuskólanum fyrir frábært sumar
Takk fyrir okkur.
Heiðurnar
19.08.2004
Þriðjudaginn 17. ágúst var líflegt að líta yfir
hafnarsvæðið. Verið var að landa úr Arnari HU og Örvar
HU kom inn til að taka olíu. Auk þess var talsvert
landað úr hraðfiskibátum sem hafa aflað bærilega að
undanförnu.
Togarinn Örvar heldur síðan á veiðar á ný og kemur
aftur inn til löndunar um mánaðarmótin en þá verður
skipið búið að vera á veiðum í um 38 daga. Afliabrögð
togaranna hafa gengið misjafnlega Örvar hefur einkum
verið á grálúðuveiðum og þar hefur þokkalegt verð á
afurðum bætt upp fremur dræma veiði. Í undirbúningi er
að Örvar fari í slipp í haust þar sem hann verður
hreinsaður og málaður og skut hans slegið út til að
bæta sjóhæfni skipsins.
Arnar var í fyrri hluta síðasta túr á karfaveiðum en þegar
botninn datt úr þeim fór hann í aðrar tegundir aðallega
þorsk, ýsu og ufsa. Veiðarnar gengu ágætlega og
landar hann nú um 365 tonnum af unnum afurðum sem
eru að aflaverðmæti um 68 milljónir. Umreiknað í afla
upp úr sjó er veiðin um 650 tonn og þar af úthafskarfi
um 1/3 aflans. Arnar mun síðan halda til veiða í
Barentshafi og fara til veiða í rússneskri lögsögu.
Veiðiheimildir þar eru um 750 tonn og reiknað með að
kvótinn verði tekin í einni veiðiferð.
29.07.2004
Höfðaskóli sem verið hefur bleikur frá 1995 mun hljóta
nýjan svip og nýjan lit á næstu vikum. Samið hefur
verið við Trésmiðju Helga Gunnarssonar að endurmála
skólahúsið. Þegar undibúningur hófst að því verki kom í
ljós að gamla málningin var orðin svo þykk á elsta hluta
hússins að ákveðið var að hreinsa hana af því ella myni
hún springa og flagna af. Sprunguviðgerðir munu einnig
fara fram áður en yfirmálun verður framkvæmd. Litur
hússins hefur verið skemmtilega til umræðu undanfarin
ár. Margir hafa látíð í ljósi efasemdir um hinn bleika lit
en aðrir hafa látið sér vel líka. Flestir hafa haft skoðun á
litnum og orðaskipti um hann oft verið skemmtileg. Nú
mun væntanlega kveða við annan tón í litavalinu en
ráðamenn skóla og sveitarfélags hafa sett um
véfréttasvip þegar spurt hefur verið um litinn. Hvað sem
því líður þá er skólinn nú í tveimur litum, gamla gula
litnum sem upphaflega var á húsinu og bleika litnum
sem einkennt hefur húsið undanfarin ár. Reiknað er
með að verkinu verði lokið í septembermánuði.
12.07.2004
Landsbankinn á Skagaströnd bauð öllum unglingum og
flokkstjórum í morgunkaffi 09.07.2004
Þetta boð var í tengslum við svokallað Vinnuskóla-dól,
sem er kynningar herferð á námsmanna þjónustu L.Í.
NÁMUNNI.
Þau mættu auðvita hress og kát eins og meðfylgjandi
myndir bera með sér og þáðu Fanta, kleinuhringi og
súkkulaðikex.
Þá fengu þau sem ekki eru Námufélagar lítil vasa-
útvörp, Námufélagar höfðu áður fengið þau send.
Með útvarpinu fylgdi texti með hinu bráðskemmtilega
lagi Hrífandi líf, sem byrjar svona:
HRIFANDI LÍF, RÍFANDI ARFA Á HNJÁNUM,
STRÍÐANDI STUÐ, NAGANDI BÖRKINN AF
TRJÁNUM.
01.07.2004
Dagbók vinabæjamóts á Skagaströnd
Dagana 24. – 27. júní 2004 var haldið norrænt
vinabæjamót á Skagaströnd. Auk Höfðahrepps eru í
vinabæjakeðjunni: Lohja í Finnlandi, Växjö í Svíþjóð,
Ringerike í Noregi og Aabenraa í Danmörku. Til
vinabæjamótsins hafði verið boðið þremur fulltrúum
sveitarfélaga hvers vinabæjar, auk maka og einum
fulltrúa norræna félags hvers bæjar, auk maka. Alls
voru gestir 33.
Fimmtudagur, 24. júní 2004.
Fulltrúar vinabæjanna komu allir með sömu flugvél frá
Kaupmannahöfn til Keflavíkur og lentu þar um
hádegisbil. Þar beið þeirra rúta sem flutti þá beint
norður á Skagaströnd og voru þeir komnir á staðinn um
17.30. Flestallir gestir voru í gistingu í heimahúsum.
Gestgjafar tóku á móti sínu fólki og buðu heim. Um
kvöldið var formleg móttaka í Viðvíkurkaffi sem er nýtt
kaffihús í svokölluðum Gamla skóla sem hefur verið
gerður allur upp. Adolf H. Berndsen oddviti setti
vinabæjamótið. Eftir það var tónlistatriði þar sem Nína
Hallgrímsdóttir og Arnheiður Óskarsdóttir léku nokkur
lög á þverflautur undir stjórn Skarphéðins Einarssonar.
Þar var einnig veitt kaffi og meðlæti og fólk sat og
spjallaði fram eftir kvöldi en flestir höfðu átt langan dag
og fóru snemma í háttinn.
Föstudagur, 25. júní 2004.
Dagskrá hófst með því að allur hópurinn mætti í
Hólaneskirkju þar sem Steindór Haraldsson
meðhjálpari kynnti kirkjuna, kirkjustarfið og stiklaði á
sögu kristninnar. Kór kirkjunnar söng létt lög og
gospelsálma við feiknagóðar undirtektir gestanna.
Stjórnandi kórsins var Anna
Eftir heimsókn í kirkjuna var farin kynnisferð um
Skagaströnd þar sem gestum var greint frá því helsta
sem staðinn varðaði. Eftir það var ekið sem leið liggur
fram í Blönduvirkjun og niður í stöðina þar sem gestir
skoðuðu túrbínur og einnig skemmtilega sýningu Jóns
Eiríkssonar um kýr. Eftir að hafa þegið góðan málsverð
hjá Landsvirkjunarfólki var farið í heimsókn í Hitaveitu
Blönduóss að Reykjum. Þar kynntu Jóhanna
Jónasdóttir og Kjartan Ólafsson starfsemina. Í
Flóðvangi í Vatnsdal hafði Magnús Ólafsson á
Sveinsstöðum kynningu á mikilvægi laxveiða fyrir
héraðið og bauð síðan upp á skemmtilega sýningu
á “landsmótshestum” á hlaðinu á Sveinsstöðum. Þótti
gestum mikið til koma glæsileika íslenska hestsins.
Þingeyrakirkja var síðan skoðuð undir leiðsögn Gígju
Hólmgeirsdóttur. Í kirkjunni söng Hugrún Sif
Hallgrímsdóttir vísur Vatnsenda-Rósu við undirleik
Sólveigar Einarsdóttur. Heimilisiðnaðarsafnið á
Blönduósi var að lokum skoðað undir leiðsögn Elínar
Sigurðardóttur. Um kvöldið var vinabæjagestum boðið í
grill í Kántrýbæ og óskað eftir kántrý-stíl í klæðaburði.
Allir fengu hatt á höfuðið og nutu kvöldsins hið besta
við dynjandi kántrýtónlist þar sem danshópurinn
Hófarnir sýndu bikarmeistaratakta í línudansinum.
Laugardagur, 26. júní 2004.
Formleg dagskrá hófst með fundi fulltrúa vinabæjanna
þar sem hver sagði frá sínum bæ, helstu málum,
stefnumiðum, veikleikum og styrkleikum. Varð sú
umræða bæði gagnleg og fræðandi. Þar kom m.a. fram
að í Ringerike er nú unnið að verkefninu “Veien til
Island” þar sem nemendur ákveðins skóla vinna að því
með foreldrum sínum og kennurum að safna fyrir og
undirbúa heimsókn til Skagastrandar á næsta ári. Að
fundi loknum var gestum boðið að smakka hákarl og
brennivín í aðstöðu Toppnets og síðan var farið í
heimsókn til björgunarsveitarinnar Strandar þar sem
starfsemi hennar var kynnt. Eftir að hafa skoðað
saltfiskvinnslu Skagstrendings og smakkað á
saltfiskréttum fór hópurinn á 12 breyttum jeppum upp í
Skagaheiði. Var ferðin í umsjón Björgunarsveitarinnar
Strandar. Í heiðinni var reynt við silung í Langavatni en
einungis 2 fiskar létu glepjast af maðki og spún.
Jeppaferðin var erlendum gestum talsvert ævintýri þar
öslað var á 35-44 tommu breyttum jeppum með fjörum
Langavatns.
Um kvöldið var hátíðarkvöldverður í hefðbundnum stíl
vinabæjamóta. Honum var að vísu frestað um nærri
klukkustund til að sænsku fulltrúarnir gætu horft á
fótboltaleik í Evrópukeppninni milli Svía og Hollendinga.
Auk fulltrúa vinabæjanna var boðið til kvöldverðarins Siv
Friðleifsdóttur, samstarfsráðherra Norðurlandanna,
gestgjöfum og þeim sem höfðu lagt vinabæjamótinu
sérstaklega til svo og fyrrverandi
hreppsnefndarmönnum á Skagaströnd. Ráðherrann
ávarpaði samkomuna á norsku og fléttaði skemmtilega
saman gamni og alvöru. Alda Ingibergsdóttir söng léttar
aríur og heillaði áheyrendur með góðum flutningi og
leikrænum töktum. Á kvöldverðinum færðu vinabæir
gjafir og fluttu þakkarávörp fyrir mótið og móttökurnar.
Sunnudagur, 27. júní 2004.
Brottför frá Skagaströnd um kl 10.00 og stefnt suður
Kjöl. Veðurútlit hafði verið afleitt fyrir þessa daga
vinabæjamótsins en ótrúlega vel hafði ræst úr, bjart
veður og fremur milt alla dagana og var sunnudagurinn
þar engin undantekning. Ferðin suður hálendið var því
með góðri fjallasýn og jöklarnir, skart íslenskra öræfa,
nutu sín vel. Á Hveravöllum skrapp meirihluti hópsins í
heitu laugina og í Kerlingafjöllum var stansað til að fá
súpu og salat. Þegar kom suður af Kjalvegi lá beint við
að heimsækja Gullfoss og Geysi en vinabæjamótinu
lauk síðan formlega á Þingvöllum þar sem Adolf H.
Berndsen, oddviti sleit því á palli lögréttu.
Það var því þreyttur en alsæll hópur sem kvaddist í
Reykjavík með áheitum um að hittast eftir tvö ár í
Aabenraa í Danmörku.
30.06.2004
Miðvkudaginn 23. júní sl. var opnað í Gamla skólanum
á Skagaströnd kaffihúsið Viðvíkurkaffi. Kaffihúsið er
hugsað sem menningarkaffihús og að þar verði til
staðar upplýsingar bæði um menningu, sögu og
umhverfi staðarins. Fyrir rekstri Viðvíkurkaffis standa
þær Dagný Sigmarsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir og
Sigrún Lárusdóttir.
Opnunartími kaffihússins er eftirfarandi:
mánudaga - fimmtudaga kl. 14.00 - 22.30
föstudaga kl. 14.00 - 23.30
laugardaga kl. 11.00 - 23.30
sunnudaga kl. 11.00 - 22.30
Í kaffihúsinu er uppi sýning á gömlum ljósmyndum frá
Skagaströnd úr safni Guðmundar Kr. Guðnasonar.