"Ekki skamma mig séra Tumi" í Hólaneskirkju

Leik- og söngdagskráin „Ekki skamma mig séra Tumi“ verður sýnd í Hólaneskirkju á Skagaströnd föstudaginn 27. júlí næstkomandi klukkan 20. Dagskráin er um vinina Jónas Hallgrímsson, rithöfund og ljóðskáld og vin hans og Tómas Sæmundsson. Guðrún Ásmundsdóttir rekur sögu þeirra sem hefur verið hulin íslenskum áhorfendum fram að þessu.

Guðrún hefur langa og mikla reynslu í því að flytja sögu sem þessi á lifandi og skemmtilegan hátt. Inn í verkið fléttast síðan ýmiskonar lög frá ýmsum tímum, sum eftir Jónas Hallgrímsson - t.d. Jeg elsker dig, önnur sem tengjast lífi hans og störfum á annan hátt. Alexandra Chernyshova sópran söngkona syngur. Leik- og söngdagskráin fjallar um ævi og störf Jónasar Hallgrímssonar og tengsl hans og vinar Tómasar Sæmundssonar á mismunandi tímum ævi þeirra. Verkið tekur einnig á þeim erlendum áhrifum sem Jónas var fyrir og koma þau vel fram í söngdagskránni en lögin eru sungin á fimm tungumálum alls. Inn í dagskránna fléttast síðan vídeóverk sem Arna Valsdóttir vídeólistamaður hefur gert um Hraundragana í Öxnadal og er tileinkað ljóði Jónasar "Ferðalok". þrír hljóðfæraleikarar koma að verkinu en leikið er undir lögin á píanó, fiðlu og selló.

Markmið er að kynna fyrir íslenskum áhorfendum ævi og störf Jónasar Hallgrímssonar og vináttutengsl hans við Tómas Sæmundsson á léttan og skemmtilegan hátt með leik- og söngdagkrá. Guðrún Ásmundsdóttir er í hlutverki sögumanns og fléttar inn í söguna leik og söng eins og við á hverju sinni. Ýmislegt kemur fram í verkinu sem íslenskir áhorfendur vissu ekki um Jónas og Tómas og á það því fullt erindi til þeirra.

Guðrún Ásmundsdóttir, leikstjóri, sögumaður og leikkona.
Hefur unnið sem fastráðin leikkona hjá Leikfélagi Reykjavíkur síðan árið 1967. Eru það rúm 100 hlutverk sem hún hefur leikið hjá L.R. og hjá Þjóðleikhúsinu. Leikstjórn bæði á Akureyri L.R sömuleiðis í sjónvarpi. Sem leikritahöfundur hefur hún skrifað: Kaj Munk (Leikið í Hallgrímskirkju 1987, sömuleiðis í Vartov kirkju í Kaupmannahöfn og veittu Danir höfundi Kaj Munk verðlaunin 1989. En þau verðlaun eru veitt höfundum sem hafa skrifað verk í tengslum eflingar friðar í heiminum ) Heilagir Syndarar (Leikið í Grafarvogskirkju 1999) Ólafia. Leikverk byggt á æfi og starfi Ólafíu Jóhannsdóttur f.1863 – d. 1924. Var það verk sýnt í Mosfellskirkju, Fríkirkjunni í Reykjavík, Skálholtskirkju og einnig í Jakobskirken í Oslo en þar var leikritið sýnt í noskri þýðingu. Guðrún hefur leikstýrt hjá Óperu Skagafjarðar, La Traviata 2007/2008 og Rigoletto 2009.

Alexandra Chernyshova, sópransöngkona og leikkona
Alexandra er fædd í Kiev, Úkraínu. Hún lauk tónlistarskóla, píanónámi, árið 1993. Þaðan fór hún í söngnám í tónlistarháskólanum Glier í Kíev, hún útskrifaðist með heiðri árið 1998. Sama ár var gerð heimildarmynd “Alexandra” sem var sýnd í ríkissjónvarpinu. Alexandra söng fyrst í óperunni í Kiev þegar hún var 19 ára gömul, aðalhlutverkið, Ivasik í óperunni "Ivasik-Telesik" eftir O.Zerbakov. Frá árinu 1998 til 2000 söng hún sem einsöngvari með Úkraínsku sinfóníuhljómsveitinni í útvarpi í Kiev. Í apríl, árið 2002, var Alexandra valin besta nýja óperuröddin í keppninni “Nýtt nafn í Úkraínu”. Síðar það ár tók hún þátt í alþjóðlegri keppni óperusöngvara í Grikklandi, Rhodes og hafnaði þar í fjórða sæti, yngst keppenda. Frá árinu 1999 til 2003 stundaði Alexandra söngnám í Músík Akademíunni Nezdanova, Odessu / Úkraínu, kennari hennar þar og um leið yfirkennari söngdeildar var prófessor Galina Polivanova. Alexandra útskrifaðist þar einnig með heiðri. Á þessum árum hefur hún sungið m.a. í óperustúdíóinu í Odessa með sinfóníuhljómsveit, hlutverk eins og Gilda úr óperunni “Rigoletto” eftir G. Verdi, Natalka úr óperunni “Natalka-Poltavka” eftir L. Lisenko o.fl. Alexandra stundaði framhaldsnám hjá Katju Riccarelli, Ítalíu og Hanno Blascke, Þýskalandi. Frá ágúst 2002 var Alexandra fastráðin sem einsöngvari í óperunni í Kiev. Alexandra fluttist til Íslands haustið 2003 og hefur frá þeim tíma haldið fjölmarga einsöngstónleika. Alexandra gaf út sinn fyrsta geisladisk árið 2006 og síðan annan í fyrra, lög eftir S. Rachmaninov. Alexandra stofanaði Óperu Skagafjarðar árið 2006 sem setti upp La Traviata 2007/2008, Rigoletto 2009 og Óperudrauginn 2011. Alexandra á og rekur eigin söngskóla, Söngskóla Alexöndru í Skagafirði. Alexandra lauk M.Ed. námi í vor frá háskóli í Kiev - lokaritgerðin var um endurmenntun tónlistarkennara. Alexandra hóf meistaranám í haust við LHÍ í nýsköpun í tónlist.

Arna Valsdóttir, vídeólistamaður og leikkona í sýningunni
Arna stundaði nám við grafíkdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1996 og síðan Jan Van Eyck Akademi-video og audiodeild, Maastricht árið 1989. Arna hefur haldið fjölmargar einka- og samsýningar hérlendis sem erlendis. Arna hefur einnig kennt við HA og listnámsbraut VMA.

Ragnar Kjartansson, leikari í sýningunni
Ragnar tilheyrir kynslóð íslenskra listamanna sem fæst við tilraunkennda listsköpun sem einkennist öðru fremur af ljóðrænni framsetningu og blöndun miðla. Hann hefur notið velgengni hérlendis sem og erlendis og tekið þátt í fjölda sýninga. Verk hans The End var t.a.m. framlag Íslands á hinum alþjóðlega Feneyjartvíæringi árið 2009. Ragnar hefur lagt mikla áherslu á leiklist í verkum sínum og hefur gert mörg vídeó þar sem hann blandar saman miðlum eins og tónlist, gjörningi og málverki en leiklistin er jafnan í forgrunni í verkum hans.

Davíð Þór Jónsson, leikari og undirleikari í sýningunni
Davíð Þór Jónsson lærði á píanó og saxafón frá 10 ára aldri við Tónlistarskólann á Akranesi og lauk burtfararprófi frá Tónlistarskóla F.Í.H. vorið 2001 með ágætiseinkunn. Davíð dvaldist sem skiptinemi við Musikkonservatoríið í Þrándheimi veturinn 1999-2000 og sótti þá meðal annars námskeið hjá Michael Formaneck, Jim Black og Gary Peacock. Hann hefur leikið með fjölmörgum sveitum, og má þar nefna tríóið FLÍS, tríóið HOD, kvintettinn MOTIF (Young Nordic Jazz Comets), Trio Grande, kvartettinn Adanak, Kaos kvartett, Súper Repús dúó og Hrafn Ásgeirsson-Davíð Þór Jónsson dúó. Hann vann ásamt Daníel Bjarnasyni tónskáldi spunahugmyndir fyrir tvo flygla sem urðu síðar kveikjan að verki Daníels, Compromisations. Þá samdi hann, útsetti og tók upp tónlist fyrir leiksýninguna CommonNonsense í Borgarleikhúsinu, fyrir stuttmyndina Konur-skapavandræði sem og fyrir stuttmyndina Njóttu lífsins, þá í samstarfi við Helga Sv. Helgasyni. Davíð Þór hefur gefið út einn geisladisk undir eigin nafni; rask. Hann sá um tónlistarflutning í Þetta er allt að koma

Hlutverkaskipan:

Tómas Sæmundsson leikur Davíð þór Jónsson
Jónas Hallgrímsson leikur Ragnar Kjartansson
Sögumaður og höfundur handrits er Guðrún Ásmundsdóttir.
Söngkona og leikandi er Alexandra Chernyshova.
Myndlistarkonur og leikendur eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Arna Guðný Valsdóttir
Heiðursgestur og leikandi í sýningunni er Þráinn Karlsson.

Sýningar verða:

Í Hólaneskirkju á Skagaströnd, föstudaginn 27. júlí klukkan 20.
Í Bifröst á Sauðárkróki Laugardaginn 28. júlí klukkan 20.
Í Ketilhúsinu á Akureyri Sunnudaginn 29. júlí klukkan 16.