„Elska þig“ úr Kántrýbæ á Youtube

Tónleikar Mannakorns í Kántrýbæ þann 11. október í haust eru eflaust mörgum minnisstæðir. Þar léku hinir landsþekktu og frábæru tónlistarmenn Magnús Eiríksson, Pálmi Gunnarsson, Ellen Kristjánsdóttir, Gunnlaugur Briem og Eyþór Gunnarsson af þvílíkri innlifun að unun var á að hlýða.

Fyrir nokkru rataði upptaka af laginu „Elska þig“ sem Ellen Kristjánsdóttir syngur inn á Youtobe, sem út af fyrir sig er ekkert merkilegt nema fyrir þá sök að upptakan var gerð í Kántrýbæ á áðurnefndum tónleikum. Lagið er eitt vinsælasta lag ársins 2009 og óhætt að fullyrða að flutningur þess tókst afar vel í Kántrýbæ og það fæst staðfest á upptökunni.

Lagið er að finna á þessari slóð:

http://www.youtube.com/watch?v=XirNxRKU9Nk