„Sóum minna – nýtum meira“

  Ráðstefna um lífrænan úrgang
Gunnarsholti á Rangárvöllum
20. mars 2015 kl. 10-17

 

Fjallað verður á margvíslegan hátt um þá möguleika sem felast í nýtingu lífræns úrgangs, meðal annars til skógræktar og landgræðslu. Í hádegishléi verður í boði léttur málsverður.

Viðfangsefni ráðstefnunnar er nýting þeirra verðmæta sem felast í lífrænum úrgangi. Fjallað verður um hugtökin úrgang og hráefni og farið yfir stöðuna hérlendis, hvaða farvegir eru fyrir lífrænan úrgang og um lausnir sem notaðar eru á ýmsum stöðum á landinu. Rætt verður um lög og reglugerðir í nútíð og framtíð, þróun vinnslutækni og nýtingar, stefnumótun hjá ríki og sveitarfélögum og hver skuli draga vagninn í þessum efnum. Sömuleiðis verða sagðar reynslusögur af ræktun með hjálp lífræns úrgangs, lífrænni ræktun í Skaftholti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, notkun kjötmjöls í Hekluskógum og landgræðslu með kjötmjöli og gor.

Fyrirlesarar  eru úr ýmsum áttum. Nefna má Stefán Gíslason, umhverfis­stjórnunar­fræð­ing hjá Environice, sem svarar spurningunni um hvers vegna sveitarfélag ætti að velta líf­rænum úrgangi fyrir sér, Björn Hafsteinn Halldórsson, framkvæmdastjóri Sorpu, segir frá nýrri gas- og jarðgerðar­stöð á höfuðborgarsvæðinu, Teitur Guðmundsson hjá Mannviti fjallar um umhverfisáhrif nýtingar, Elsa Ingjaldsdóttir hjá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands og Guðrún Lind Rúnarsdóttir hjá Mast fjalla um hvað má og má ekki. Einnig ávarpar Sigrún Magnús­dóttir umhverfisráðherra ráðstefnuna. Sjá nánar í dagskrá ráðstefnunnar.

Aðstandendur ráðstefnunnar eru Sorpurðun Vesturlands, Molta ehf. Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök sunnlenskra sveitarfélaga ásamt Landgræðslu ríkisins og Skógrækt ríkisins. Ágúst Sigurðsson, sveitarstjóri Rangárþings ytra, verður ráðstefnustjóri.

Rútuferð verður í boði frá BSÍ ef nógu margir sækjast eftir því. Takið fram í tölvupósti til Eddu ef þið hafið áhuga á að nýta rútuferð. Látið verður vita 19. mars hvort af rútuferðinni verður. Rétt er að hvetja sem flesta til að nýta sér rútuna til að draga úr mengun Farið kostar 3.500 kr.

Skráning fer fram í tölvupósti til Eddu Linn Rise á netfangið eddalinn@land.is. Þátt­tak­endur eru beðnir að skrá sig sem fyrst og í allra síðasta lagi 17. mars. Þetta gildir bæði um skráningu á ráðstefnuna og í rútuna.


Undirbúningsnefndina skipa:
Eiður Guðmundsson formaður
Hrefna B. Jónsdóttir 
Sorpurðun Vesturlands  
Lúðvík Gústafsson 
Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Magnús H. Jóhannsson 
Landgræðslu ríkisins
Ólöf Jósefsdóttir 
Moltu ehf.
Pétur Halldórsson 
Skógrækt ríkisins
Þórarinn Egill Sveinsson – SASS, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga



Dagskrá

 

 

9.30     Skráning gesta, morgunkaffi og horft til himins. Allt að 98% deildarmyrkvi á sólu í Gunnarsholti kl. 9.37

10.00   Gestir boðnir velkomnir – Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri

10.05   Setning ráðstefnunnar – fulltrúi vinnuhóps

10.15    Úrgangur eða hráefni, úrgangur í dag, neysluvara á morgun – Lúðvík E. Gústafsson Sambandi íslenskra sveitarfélaga

10.45   Nýting lífræns úrgangs. Staðan um þessar mundir
a. Farvegir og straumar – Eiður Guðmundsson
b. Lausnir á Suðurlandi, Orkugerðin – Guðmundur Tryggvi Ólafsson

11.30    Af hverju ætti sveitarfélag að velta lífrænum úrgangi fyrir sér? – Stefán Gíslason Environice

12.00   Hádegismatur

13.00   Ávarp Sigrúnar Magnúsdóttur umhverfisráðherra

13.20   Lög og reglugerðir á mannamáli. Hvað má og hvað má ekki? – Elsa Ingjaldsdóttir Heilbrigðiseftirliti Suðurlands, Guðrún Lind Rúnarsdóttir MAST

13.40   Ný gas- og jarðgerðarstöð á höfuðborgarsvæðinu – Björn Hafsteinn Halldórsson Sorpu

14.00   Vinnslutækni, nýting og umhverfisáhrif. – Teitur Gunnarson Mannviti

14.20   Stefnumótun hjá ríki og sveitarfélögum. Hver á að draga vagninn? – Laufey Guðmundsdóttir, lögfræðingur í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, Lúðvík E. Gústafsson, Sambandi íslenskra sveitarfélaga

 14.50  Reynslusögur
a. Lífræn ræktun í Skaftholti
b. Hekluskógaverkefnið
c. Landgræðsla með kjötmjöli og gor

15.20   Kaffi

15.40   „Er ekki tími til kominn að tengja?“ Verkefni og hugmyndir í gangi
a. Verkefni UST. Öflun upplýsinga um lífrænan úrgang. Styrkt af norrænu ráðherranefndinni – Guðrún Lilja Kristinsdóttir Umhverfisstofnun
b. Verkefni Landgræðslunnar í nýtingu lífræns úrgangs – Magnús H. Jóhannsson Landgræðslunni
c. Hagkvæmni metanframleiðslu – Dofri Hermannsson Íslenska gámafélaginu

16.30   Pallborðsumræður – Guðrún Lind Rúnarsdóttir, Lúðvík E. Gústafsson, Stefán Gíslason og Teitur Gunnarsson

16.50   Ráðstefnuslit, samantekt