1100 tonn af brotajárni í skip

Hringrás er nú að flytja um 1100 tonn af brotajárni um borð í flutningaskip sem liggur í Skagastrandarhöfn. Þetta er einungis hluti af því sem safnast hefur saman á undanförnum misserum og búast má við því að járnið gangi nú í endurnýjaða lífdaga og birtist hugsanlega aftur á Íslandi sem ísskápur, steypustyrktarjárn eða eitthvað annað.

Annar og stærri haugur bíður útflutnings en það eru bílflök sem hafa verið pressuð saman. Ástæðan fyrir því að þau fara ekki með þessu skipi er að vinnsluaðferðirnar eru ólíkar. Bílflökin eru tætt í sundur og síðan flokkuð og brædd en járnið fer beint í bræðslu. Að sögn forráðamanna Hringrásar er ekki hægt að segja til um hvenær bílflökin fara en væntanlega er skammt í það.

Flutningaskipið Wilson Gijon fer næst til Akureyrar sem og starfsmenn og bílafloti Hringrásar og útflutningurinn heldur áfram.