Sunnudaginn 19. júlí var sannkölluð hlaupaveisla á Skagaströnd í boði Atwork og Ungmennafélagsins Fram. Boðið var upp á fjórar vegalengdir, 1 km skemmtiskokk, 5 og 10 km götuhlaup og 18 km utanvegahlaup en öll hlaupin voru ræst frá höfninni. 70 hlauparar voru skráðir til leiks og voru margir að stíga sín fyrstu skref á meðan aðrir voru þaulvanir. Hlaupararnir áttu það þó allir sameiginlegt að njóta þess að hlaupa í góðri samveru. Veðrið var með ágætum og sólin kíkti aðeins á yngstu hlauparana í skemmtiskokkinu.
Það lögðu margir hönd á plóg við undirbúning og framkvæmd hlaupsins. Björgunarsveitin Strönd sá m.a. um gæslu og var í viðbragðsstöðu vegna utanvegahlaupsins, fjölmargir sjálfboðaliðar sinntu brautargæslu og öðrum verkefnum. Kvennfélagið Eining riggaði upp kökuhlaðborði að hlaupi loknu sá til þess að enginn fór svangur heim.
Sveitarfélagið þakkar Tómasi Ragnarz, Fríðu Rún Þórðardóttur og Ungmennafélaginu Fram fyrir framtakið og öllum sjálfboðaliðum sömuleiðis fyrir þeirra framlag.
Takk fyrir algjörlega frábæran hlaupadag – sjáumst að ári!