Aðventuhátíð verður í Hólaneskirkju sunnudaginn 29. nóvember kl. 17.00.
Komum saman á fyrsta sunnudegi í aðventu og tökum á móti aðventunni með söng og lestri.
Kirkjukór Hólaneskirkju syngur undir stjórn Hugrúnar Sifjar, organista. Fermingarbörnin lesa fyrir okkur um aðventuna og Ragnheiður Erla Stefánsdóttir flytur hugleiðingu.
Sr. Margrét Rut leiðir stundina.
Verið hjartanlega velkomin.